fbpx
Mánudagur 19.maí 2025
Fréttir

Konur í fæðingarorlofi upplifa sig sem gleymda starfsmenn: „Það var eins og ég væri bara hætt“

Auður Ösp
Miðvikudaginn 29. apríl 2020 17:00

Ætli það vaxi fíflar þarna? Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Konur í fæðingarorlofi finna gjarnan fyrir því að samband þeirra við vinnustaðinn verður mjög takmarkað meðan á orlofinu stendur. Það getur reynst erfitt að koma til baka í vinnuna eftir langan aðskilnað en konur upplifa sig oft ekki sem hluta af fyrirtækinu þegar þær eru í fæðingarorlofi. Margar þeirra upplifa hrein sambandsslit við vinnustaðinn og þurfa sjálfar að falast eftir endurkomu.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum MS-lokaritgerðar Sigrúnar Eddu Kristjánsdóttur við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, þar sem fjallað er um tengsl kvenna í fæðingarorlofi við vinnustað sinn. Tilgangur rannsóknar Sigrúnar var að kanna hvernig yfirmenn gætu aukið líkur á að tengslin á milli mæðra og vinnustaðarins haldist í fæðingarorlofi.

Sumar upplifa sig gleymdar

„Mig langaði til að rannsaka þetta viðfangsefni eftir að hafa sjálf verið í fæðingar- orlofi og heyrt frásagnir af mismunandi upplifun kvenna af tengslum við vinnustað sinn,“ segir Sigrún Edda í samtali við DV.

Sigrún Edda Kristjánsdóttir. Ljósmynd/Facebook

Í tengslum við rannsóknina ræddi Sigrún við átta íslenskar konur á aldrinum 25-29 ára sem áttu það sameiginlegt að hafa snúið aftur til starfa að loknu fæðingarorlofi. Konurnar komu frá ólíkum vinnustöðum, nokkrar þeirra voru almennir starfsmenn á fjölbreytilegum starfssviðum, aðrar voru deildarstjórar og ein var snyrtifræðingur. Konurnar áttu það þó allar sameiginlegt að hafa verið í sama starfi fyrir meðgöngu, á meðgöngu og hafa farið í fæðingarorlof úr því starfi.

„Mér finnst mjög athyglisvert að mæður virðist upplifa að einhverju leyti að sálfræð legi samningurinn falli úr gildi í fæðingarorlofi á þann hátt að þær eiga í takmörkuðum samskiptum við vinnustaðinn. Það var mjög áhugavert að rannsaka samband mæðra í fæðingarorlofi við vinnustaðinn og mér fannst sérstaklega leiðinlegt að heyra hvað sumar upplifðu að þær gleymdust þegar þær voru í orlofi. Sumum þeirra var hvorki boðið á viðburði né fundi og samskiptin þarna á milli urðu oft mjög lítil meðan á fæðingarorlofi stóð,“  segir Sigrún.

„Mér finnst það mjög slæmt þegar það er tilfellið og þess vegna mikilvægt að hafa einhvern gátlista um þau samskipti sem nauðsynlegt er að hafa í lagi þegar fólk fer í fæðingarorlof, þannig að fólk detti ekki alveg út í fæðingarorlofi heldur haldi einhverjum tengslum við vinnustaðinn.“

Algengt að tengslin við vinnufélagana rofni

Langflestar kvennanna sem Sigrún ræddi við þurftu að hafa samband við sinn yfirmann að fyrra bragði til að fá upplýsingar um hvenær þær ættu að mæta og vita hvort einhverjar breytingar hefðu orðið á vinnustaðnum áður en þær komu úr fæðingarorlofi.

„Mæti ég bara, þú veist, þarf ég ekki að sjá hvað er búið að breytast og hvað er nýtt? En það var ekkert. Það var eins og ég væri bara hætt,“ segir ein úr hópnum.

Mynd úr safni.

Meðan á fæðingarorlofinu stóð var samband kvennanna við vinnustað sinn og samstarfsfélaga mjög misjafnt. Í sumum tilfellum voru samskiptin við vinnufélaga yfirborðskennd og tengslin rofnuðu í fæðingarorlofinu:

„Ég fann alveg svolítið eftir að ég kom aftur að ég missti svona smá tengslin,“ segir ein úr hópnum og vísar í starfsmannabreytingar á vinnustaðnum.

Þá kom einnig fram í samtölum við konurnar að samskipti á milli vinnunnar og einstaklingsins í fæðingarorlofi hefðu verið mjög lítil og upplifun kvennanna var stundum sú að þær skiptu kannski ekki rosalega miklu máli á vinnustaðnum á þessum tíma, eins og ein úr hópnum lýsir:

„Kannski er þetta bara normið í dag, maður fer í fæðingarorlof og þá er maður bara út úr vinnu og öllum sama.“

Sumar konurnar fengu hvorki senda tölvupósta né vaktaskýrslur í fæðingarorlofinu og vissu þannig ekkert um neitt sem var í gangi innan vinnustaðarins. Ein þeirra segir: „Ég var tekin út af póstlistanum þegar ég var í fæðingarorlofi þannig að ég vissi ekkert hvað var í gangi.“

Langflestum þeirra var ekki boðið á þá starfsmannafundi sem haldnir voru á meðan þær voru í fæðingarorlofi né voru þær upplýstar um breytingar sem tóku gildi innan vinnustaðarins. Einnig kom fram að ekki hefði verið mikill áhugi fyrir því að mæta á slíka fundi þó að það hefði verið gott að fá helstu upplýsingar um breytingar á vinnustaðnum. Þá greinir ein móðirin frá því að hún mátti ekki halda áfram að borga í starfsmannasjóðinn á meðan hún var í fæðinga orlofi og þurfti því að greiða sjálf fyrir alla þá viðburði sem hún vildi taka þátt í.

Einnig nefndu konurnar að bæði samfélagið og löggjafinn á Íslandi þyrftu að fara að viðurkenna þær mæður sem vildu vera lengur heima með barninu með því að koma fram með einhver úrræði. Ein móðirin sagðist hafa tekið eitt og hálft ár í fæðingarorlof, en þegar ár var liðið fann hún fyrir miklum þrýstingi frá samfélaginu og alls kyns fólki í kringum sig um hvort hún ætlaði ekki að fara að drífa sig aftur út á vinnumarkaðinn:

„Eftir að ég var búin að vera ár heima eða rétt svona tæpt ár þá fannst mér fólk vera svolítið farið að ýta á mig: „ já ferðu ekki núna að fara að vinna?“ Ég fann svolítið mikið fyrir því þegar fór að detta í fyrsta árið.“

Langflestar konurnar fóru sjaldan í heimsókn á vinnustað sinn í fæðingarorlofinu, en helstu ástæður fyrir því voru að þær höfðu lítið samband við vinnustað sinn í orlofinu og vildu sjálfar kúpla sig aðeins út úr vinnunni og vildu fá að ráða algjörlega á hvaða forsendum þær ættu samskipti við vinnustaðinn. Flestum var þó boðið með á þá viðburði sem haldnir voru í fyrirtækinu meðan á fæðingarorlofinu stóð, einsg og jólahlaðborð, árshátíðir, starfsmannaferðir og fleira. Fram kom að sumar kvennanna þurftu að sækjast sjálfar eftir að fá að mæta á viðburðina en voru þó velkomnar.

Sumar um mæðrunum sögðu þó hafa gleymst þegar þær voru í fæðingarorlofi og ekki verið boðið á neina viðburði: „Neibb. Mér var ekki boðið á árshátíðina, ekki jólagleðina og ég hafði samband og spurði hvers vegna og það datt engum í hug að heyra í mér, ég bara gleymdist segja þau,“ segir ein af þeim.

Nauðsynlegt að halda sambandi

Í niðurstöðum Sigrúnar kemur meðal annars fram að yfirmaður getur haft heilmikil áhrif á það hvort ákjósanlegt sé fyrir konur að koma aftur til baka í sitt fyrra starf að loknu fæðingarorlofi. Ef yfirmaðurinn er skilningsríkur og sýnir sveigjanleika virðist vera líklegra að konan vilji snúa til baka. Til þess að viðhalda tengslum við yfirmann og samstarfsfélaga getur verið mikilvægt fyrir konurnar að fara í heimsókn í vinnuna og taka þátt í viðburðum sem haldnir eru á meðan þær eru í fæðingarorlofi. Á móti kemur að nauðsynlegt er fyrir stjórnendur að hafa í huga að halda sambandi við konuna og að henni berist boð á þessa viðburði og finni að hún sé svo sannarlega enn hluti af starfsmannahaldinu.

„Mjög algengt virðist vera að mæður vilji koma til baka í minna starfshlutfall en þær voru áður í og einnig vilja þær eiga kost á að geta skroppið úr vinnu eða tekið sér frí ef það er til dæmis lokað á leikskólanum hjá barninu eða ef það þarf að skreppa með það til læknis. Þær konur sem upplifa sveigjanleika í starfi eru jákvæðari gagnvart því að fara aftur í vinnu að loknu fæðingarorlofi,“ segir ennfremur í niðurstöðum rannsóknarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ásakanir ganga á víxl á milli eigenda fasteignar á Vesturlandi – Kærðir fyrir húsbrot en svöruðu með fullyrðingum um hústöku og sóðaskap

Ásakanir ganga á víxl á milli eigenda fasteignar á Vesturlandi – Kærðir fyrir húsbrot en svöruðu með fullyrðingum um hústöku og sóðaskap
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varar foreldra við að setja handklæði utan um axlir barna – Er stórhættulegt og til er mun betri leið

Varar foreldra við að setja handklæði utan um axlir barna – Er stórhættulegt og til er mun betri leið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári