Greint er frá komu heiðlóunnar á Facebook-síðu Fuglaathugunarstöð Suðausturlands. „Í gær heyrði BB í heiðlóu utan við Ósland á Höfn, en sá ekki svo ekki var verið að tilkynna hana þá. Í dag heyrði hann aftur í heiðlóa nú á Flóanum við Höfn og tókst svo að sjá hana. Það hafa engar lóur verið á Höfn eða nágrenni síðan í haust.“
Það voru þó ekki bara lóur á svæðinu. „Á svæðinu Höfn-Berufjörður voru í dag 5-600 tjaldar, yfir 2000 álftir, nokkrar grágæsir, 20 brandendur og svo hefur rauðhöfðaöndum fjölgað einnig eru greinilega komnir stelkar við Höfn.“