„Verst finnst mér að missa af afmæli sonar míns þann 16. mars,“ segir Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en hún er núna í sóttkví eftir skíðaferð í frönsku ölpunum.
Hún segir að lífið sé einmanalegt í sóttkvínni en hún fagni þessum aðgerðum og gangist fúslega undir þær. „Já, það verða bara allir að sýna ábyrgð í þessum málum. Þetta eru tilmælin og ég fer auðvitað bara eftir þeim.“
Sóttvarnalæknir gaf út þá tilkynningu að allir sem hefðu verið í ölpunum frá 29. febrúar ættu að fara í sóttkví. Katrín ákvað hins vegar fara í sóttkví áður en þessi fyrirmæli voru gefin út:
„Það var talað um að fólk hvaðan sem er úr ölpununum færi mögulega í sóttkví, ekki bara Ítalíu og Ischle, föstudaginn 6. þannig ég ákvað bara í samráði við mitt fólk að fara í sóttkví þá strax og sjá hvernig myndi vinda fram. Tilmælin komu samt ekki fyrr en á mánudaginn. Þá var ég mjög fegin að hafa tekið þessa ákvörðun.“
Katrín hefur hvorki séð eiginmann sinn né börn í nokkurn tíma og segir að þetta líf sé mjög einmanalegt en hún dvelst ein í séríbúð á meðan eiginmaðurinn dvelst með börnunum hjá foreldrum Katrínar.
„Maðurinn minn hefur fært mér vistir og hjólið mitt. Ég klára 20. mars,“ segir Katrín en eins og fyrr segir missir hún af afmæli sonar síns nokkrum dögum áður og segir hún að það sé líklega það erfiðasta við sóttkvíina.
Tekið skal fram að Katrín er ekki með nein einkenni veirusmits og enginn úr hennar ferð hefur greinst með veiruna.