Fréttir

Dýpsta lægð sögunnar nálgast Ísland - Gæti slegið heimsmet

Mynd
Frá Akureyri. Mynd: Einar Logi Vilhjálmsson

Ef það er eitthvað sem hefur - ekki farið framhjá neinum hér landi þá er það óveðrið sem fór hér yfir í dag. Þó svo að veðrið sé farið að hægja á sér þá er sumarið alls ekki á næsta leyti. Það sem virðist þó vera á næsta leyti er ein dýpsta lægð sögunnar en hún nálgast nú Ísland. Blika.is greinir frá þessu.

Samkvæmt spám þá nálgast lægðin Ísland hratt úr suðvestri og ætti hún að fara yfir sunnanvert landið. Vindurinn sem fylgir þessari lægð ætti þó að vera minni en var í dag en þó er spáð vindhraða yfir 20 metrum á sekúndu ásamt úrkomu.

Þrátt fyrir að ekki sé spáð meiri vindhraða en var í dag þá er þessi lægð engu að síður söguleg. Reiknilíkanið sem Blika notar reiknar 915 hPa þrýsting í lægðinni en það er með því lægsta sem hefur sést samkvæmt þeim. Í metabókum eru tvær lægðir sem keppast um titilinn sem dýpsta lægð sögunnar á heimsvísu en báðar náðu þær mestu dýptinni nálægt Íslandi. Veðuráhugamenn munu án efa fylgjast með þessari lægð á morgun og sjá hvort heimsmet verði slegið.