Íslendingar eru góðir ýmsu en það ríkir aldeilis skortur á skrúðgöngum og tilefnisgöngum. Á Gleðigöngu Hinsegin daga ríkir gleðin í hinni tærustu mynd, rétt eins og Druslugangan þar á undan kemur punkti sínum glæsilega til skila. Göngurnar búa yfir svo mikilli samstöðuorku að ómögulega komast sumir hjá því að velta fyrir sér hvaða önnur tilefni væri hægt að nýta til skrúðgöngu.
Ísland fór á hliðina þegar kom í ljós að ákveðnir Íslendingar áttu í hlut í Panama-skjölunum alræmdu. Til að minna almenning á þennan skandal væri ekki svo galið að hefja skrúðgöngu frá húsi Sigmundar Davíðs og taka langa göngu upp að Alþingishúsi til að fagna mótmælunum sem áttu sér stað árið 2014. Æskilegt væri að mæta með pappíra til að dreifa um allar götur og klæðast felulitum, jafnvel huliðsskikkjum.
Það voru svo sannarlega mikil kaflaskil hér á landi í október 2008. Til að minnast þess ætti almenningur að ganga um götur með sparibauka, potta og pönnur og láta rækilega í sér í sér heyra. Hentugasta nálgunin væri sennilega að ganga hring í kringum miðbæ Reykjavíkur, sem frekara tákn um að við gætum verið á góðri leið með að stefna í annað hrun.
Fólk setur að sjálfsögðu á sig sína flottustu gervimottu og fagnar lostanum eins og hann leggur sig og yfirburðum landans til að eignast nýja „Íslandsvini“ eins og þeir kallast. Í kringum sumarið 2002 kom hinn góðkunni Ron Jeremy til Íslands. Þá þýðir vissulega ekkert annað en að landsmenn safnist saman með gervimottu framan í sér og söngli eitthvert þemalag í fagnaðarskyni vegna víðfrægra Íslandsvina. Langsóttari hlutir hafa nú gerst.
Nú í ár er heill áratugur liðinn síðan stórrisakeðjan McDonald‘s kvaddi Ísland og kom þannig landinu í ákveðna sérstöðu. Fólk á það til að grínast með að jafnvel þriðja heims lönd bjóði upp á sveittu McBorgarana og sé þá Ísland komið langt undir þann stall. Þetta er alls ekki rétt. Þvert á móti eiga Íslendingar að sjá þetta sem tilefni til hollara mataræðis. Því ekki þá að þramma frá Suðurlandsbraut til Austurstrætis (þar sem matstaðirnir voru upphaflega til húsa) með blaðlauk og spergilkál við hönd? Hægt er að kyrja: „Ísland og matur! Keðjuna McBurt!“
Þann 1. janúar 2018 tóku gildi lög um breytingu stöðu um jafnan launarétt karla og kvenna. Megin breytingin var sú að nú er fyrirtækjum og stofnunum skylt að sýna fram á að þau greiði jöfn laun fyrir sömu og jafn verðmæt störf. Jafnlaunastaðallinn er svo sannarlega skref í réttu áttina og þótt nýársdagurinn sé ekki heppilegasti dagurinn til að rífa fólk á lappir og marsera með bros á vör, má vel vinna með þá hugmynd ef heitt kakó eða kaffi verður í boði.