Björn Birgisson, sem margir Grindvíkingar þekkja fyrir að liggja ekki skoðun sinni, segir á Facebook að útgjöld sín í mat á Tenerife hafi verið afhjúpandi og sýna vel hvers vegna eldri borgarar flýja þangað.
„Að nýta peningana sína vel! Frá janúar til loka ágústmánaðar á þessu ári voru meðalútgjöld okkar hjóna í okkar Nettó verslun 81500 krónur á mánuði. September mánuð dvöldum við á Tenerife. Þar keyptum við matvæli fyrir 49000 krónur – innifaldar í þeirri tölu eru sex ferðir út að borða!,“ skrifar Björn.
Hann segir íslensk stjórnvöld niðurlægja eldri borgara. „Er ekki hissa á að eldri borgarar Íslands yfirgefi ættjörðina sem þeir hafa gefið líf sitt og ævistarf – en uppskera að launum ekkert annað en skítkast, niðurlægingu og skerðingar af hálfu stjórnvalda. Hvar eiga eldri borgarar þessa lands að leita að norrænu velferðinni sem stundum er sagt að sé hér við lýði? Getur einhver svarað því?,“ spyr Björn.
Anna Kristjánsdóttir, sem flutti nýverið til Tenerife, tekur undir með honum og segir: „Norræna velferðin er ekki á Íslandi“.