fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Fréttir

Gamma reddaði málunum

Ritstjórn DV
Laugardaginn 19. október 2019 15:15

Sólveig Anna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi starfsmenn Eflingar hafa stigið fram opinberlega undanfarnar vikur með harðar ásakanir. Maxim Baru, Christina Milcher, Robakjewicz og Ani Mărincean sögðu farir sínar ekki sléttar. Þeim hafi verið vikið úr starfi, eða störf þeirra lögð niður án útskýringa, án fyrirvara og þvert á þau loforð sem þeim höfðu verið gefin. Þessar ásakanir eru af öðru bergi brotnar en aðrar sem áður höfðu komið fram. Þær vörðuðu innanhússhreinsun sem átti sér stað eftir að Sólveig Anna Jónsdóttir tók við formannsstólnum, þessar nýju hins vegar koma frá starfsmönnum sem Sólveig fékk sjálf til liðs við sig og því biðu margir spenntir eftir hefðbundinni færslu á vefsíðu og Facebook-síðu Eflingar þar sem ásökununum væri vísað á bug með viðeigandi rökstuðning. Ekkert varð þó af slíkri færslu. Á sama degi var mikið fjallað um ófarir verðbréfasjóðsins Gamma og í kjölfarið rifjað upp að fyrir ári tók Efling sjóði sína úr stýringu þaðan. Í kjölfarið birti Efling færslu um Gamma og hvað það var góð ákvörðun að færa sjóði sína þaðan. Starfsmennirnir fjórir voru greinilega ekki orðanna virði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir