fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Grátandi Rúmeninn vandar Eflingu ekki kveðjurnar – „Ég er bara orðlaus“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 20. júlí 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðeins hefur verið lögð fram stefna fyrir hönd fjögurra einstaklinga sem störfuðu fyrir starfsmannaleiguna Menn í vinnu, en alls hafa um fimmtíu starfsmenn leitað til Eflingar eftir aðstoð. Þessir fjórir starfsmenn höfðu starfað allt í allt í tæpan mánuð hjá starfsmannaleigunni. Óljóst er hvar mál hinna 46 starfsmannanna eru stödd. Ekki fæst staðfest að önnur notendafyrirtæki starfsmannaleigunnar hafi greitt kröfurnar sem voru lagðar fram, en hvorki Efling né lögmaður þeirra gátu staðfest að slíkt hefði átt sér stað.

Efling hefur ekki haft samband síðan í febrúar

Romeo Sarga

Romeo Sarga varð eftirminnilega andlit baráttunnar eftir að hann steig fram í fréttum og greindi frá aðstæðum sínum og annarra kollega hjá starfsmannaleigunni. Hann er ekki meðal þeirra fjögurra sem stefnt hefur verið fyrir, og veit ekki fyrir víst hvort lögmannsstofan Réttur sé yfirhöfuð að vinna í máli hans.

„Ég hef ekkert heyrt síðan í febrúar, og skil ekki hvers vegna,“ segir Romeo í samtali við blaðamann. „Þetta gerir mig ákaflega kvíðinn og reiðan. Hvert get ég leitað? Ég er mjög leiður yfir þessu, ég bjóst ekki við að Efling myndi draga mig á asnaeyrunum með þessum hætti.“ Hann segir að þeir starfsmenn sem greinir frá í stefnunni séu þeir sem unnu styst fyrir Menn í vinnu. „Til hvers að koma hingað og vinna myrkranna á milli í rigningu og roki? Sumir okkar eru með fátæk börn á framfæri. Ég er bara orðlaus.“

Efling mismunar

Valeriu Marius Peptenatu starfaði fyrir Menn í vinnu þegar fréttaskýringarþátturinn Kveikur fjallaði um bága stöðu erlendra verkamanna í október í fyrra. Hann hefur staðið í ströngu við að reyna að fá upplýsingar um hvar hans mál er statt og sakar Eflingu um mismunun. Af hverju gæta þau bara hagsmuna fjögurra Rúmena sem unnu bara stutt hjá leigunni á meðan við sem unnum þarna í mun lengri tíma erum ekki einu sinni hluti af þessu ferli? Efling mismunar.“ Hann leitaði fyrst til Eflingar í september fyrir næstum ári, en máli hans virðist ekki miða neitt áfram.

 

Sakar Eflingu um að ljúga að rúmenskum yfirvöldum

Valeriu (lengst til vinstri) og fleiri á leið að mótmæla

Valeriu er staddur í Rúmeníu og fer fyrir hópi 32 fyrrverandi starfsmanna MÍV. Eftir að Efling tilkynnti í lok febrúar að Ragnari Aðalsteinssyni hjá Rétti hefði verið falið að gæta hagsmuna 18 verkamanna leitaði hann til rúmenskra yfirvalda eftir upplýsingum.

Í bréfi sem hann fékk sent frá rúmenska utanríkisráðuneytinu segir:

Samkvæmt upplýsingum frá Eflingu voru starfsmenn beðnir um að senda inn launaseðla og tímaskráningu sem hægt væri að nota sem grundvöll fyrir kröfum. Þó svo að 50 Rúmenar hafi upprunalega leitað til Eflingar sendu aðeins fáeinir þeirra fullnægjandi gögn, mikill meirihluti þeirra yfirgaf Ísland og vildu þeir ekki kæra Menn í vinnu til lögreglunnar. Rúmenska sendiráðið í Kaupmannahöfn mun halda áfram að fylgjast með þróun mála og verður einnig í stöðugum samskiptum við viðeigandi stofnanir á Íslandi.

Í kjölfarið hafi Valeriu samband við Eflingu og sakaði þau um lygar. Hann hafi sent þeim allar upplýsingar, bæði í tölvupósti og bréfapósti. Þetta getur blaðamaður staðfest því hann fékk samrit af tölvupóstunum þegar þeir voru sendir Eflingu. Einnig hafði starfsmaður Eflingar staðfest móttöku póstsins með tölvupósti. „Þetta er bara leiksýning,“ segir Valeriu og hyggst mótmæla fyrir utan skrifstofu íslenska ræðismannsins í Rúmeníu í dag.

Segir kerfið ósanngjarnt

Valeriu hafði einnig samband við túlk sem starfaði fyrir Eflingu þegar málið kom upp og fékk þær upplýsingar að aðeins væri unnið í málum þeirra verkamanna sem voru við störf í febrúar á þessu ári. Blaðamaður  hefur fengið að sjá skjáskot af samtölunum og fær þessi fullyrðing hans stoð í þeim gögnum. Þar greinir túlkurinn frá því að mál rúmensku verkamannanna séu flokkuð mismunandi eftir því hvort þeir hafi kvartað persónulega, eða sem hluti af hópi sem kvartaði sameiginlega. Þeir sem leituðu til Eflingar í febrúar hafi gert slíkt sameiginlega, en aðrir ekki. Þar lýsir túlkurinn því líka yfir að hann sé sammála Valeriu um að kerfi Eflingar sé ósanngjarnt og aðgerðir stéttarfélagsins yfirborðskenndar.

Túlkurinn, sem vill ekki láta nafn síns getið, vildi ekki tjá sig frekar um málið í samtali við blaðamann. Samtal hennar við Valeriu hafi verið í trúnaði og hún hefði ekkert við fjölmiðla að ræða.

Maður í vinnu hjá Mönnum í vinnu

Engin svör

Efling hefur ekki svarað spurningum blaðamanns um stöðu hinna 46 Rúmenanna sem til félagsins leituðu. Blaðamaður hefur falast eftir afdrifum þessara mála í töluverðan tíma, en fátt verið um svör. Lögmaður Eflingar neitar að svara fyrirspurnum og vísar til þagnarskyldu. Hvorki Romeo né Valeriu hafa fengið greitt og kannast ekki við að nokkur kollegi þeirra hafi fengið greitt.

Þeir fá takmarkaðar upplýsingar og vita ekki hvar mál þeirra standa. Að þeirra sögn er eins komið með ríflega 30 aðra verkamenn sem unnu fyrir MÍV. Þeir fá heldur engin svör um af hverju Rétti voru fengin aðeins 18 mál af 50 og hvað þá af hverju aðeins sé stefnt fyrir hönd fjögurra þeirra. Hvað með hina 46?

 

Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Í gær

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“