Bandarísk klámmyndaleikkona sem gengur undir nafninu Layna Landry deildi í fyrra myndbandi af svæsnu klámi sem að hennar sögn er tekið upp í búningsklefa íslenskrar heilsulindar. Hún tiltekur ekki nánar hvar á Íslandi myndbandið er tekið.
Allt bendir þó til þess að myndbandið hafi verið tekið upp í kvennaklefa Bláa lónsins. Bæði hefur DV heimildir fyrir því að myndbandið sé tekið upp þar en auk þess birti Landry mynd af sér í lóninu á Instagram.
Engin nema Landry sjálf sést í myndbandinu en hún virðist hafa tekið það upp innan einkaklefa innan kvennaklefans. Í myndbandinu sést Layna afklæðast og fróa sér. Samkvæmt 209. grein hegningarlaga er svona lostugt athæfi bannað á almannafæri þar sem það særir blygðunarsemi. Getur sá sem er dæmdur fyrir slíkt þurft að sitja í fangelsi í allt að fjögur ár, en sektir eru við smávægilegum brotum.
Sjá einnig: Svæsið klám í Reykjadal – Tóku upp myndskeið á vinsælli gönguleið fyrir ofan Hveragerði og á hóteli
Í fyrra var greint frá því að Landry hafi tekið upp annað klámmyndband hér á landi, en það var tekið á fjölsóttum ferðamannastað við Hveragerði. Bæði myndbönd virðast hafa verið tekin upp í október í fyrra en Landry birtir þau sjálf á Pornhub, stærstu klámsíðu heims. Auk fyrrnefndra myndbanda þá deildi Landry þriðja myndbandinu sem er sagt hafa verið tekið upp á Íslandi. Það myndband er þó ólíkt hinum og ekki tekið upp á almannafæri.
Athygli vekur að myndbandið sem íslenskir fjölmiðlar greindu frá í fyrra er með langmest áhorf allra myndbanda hennar. Það hefur verið horft á það tæplega 50 þúsund sinnum á meðan horft hefur verið á myndbandið í Bláa lóninu ríflega 13 þúsund sinnum.
Í þeim mánuði birti Landry myndir á Instagram sem teknar voru víðsvegar á Íslandi, þar á meðal í Bláa lóninu. Hún hylur í þeim myndum aðeins það allra heilagasta, líkt og sjá má hér fyrir neðan.
https://www.instagram.com/p/Bo16lcxDpyp/
https://www.instagram.com/p/Bo16Nasjq1L/
https://www.instagram.com/p/Bo16BFODzCF/
https://www.instagram.com/p/Bo156k6DfG4/
https://www.instagram.com/p/Bo153ucDDEq/