fbpx
Mánudagur 05.maí 2025
Fréttir

Tveir rafbílar brunnu eftir að venjuleg framlengingarsnúra var notuð

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. apríl 2019 12:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gríðarlega mikilvægt er að hleðsla rafbíla sé rétt framkvæmd en svo virðist vera sem hún vefjist fyrir mörgum. Eldur sem kom upp í tveimur rafmagnsbílum og olli því að þeir eru gjörónýtir orsakaðist af því að venjuleg framlengingarsnúra var notuð við hleðslu bílanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem VÍS hefur sent frá sér, en í henni kemur fram að félaginu hafi borist margar ábendingar um þetta. Mikilvægt er að hlaða bílana á réttan hátt til að koma í veg fyrir bruna í bílnum eða því húsnæði sem raflögnin kemur fram.

Í tilkynningunni segir að hefðbundin framlengingarsnúra þoli ekki það mikla álag sem verður þegar bíll er hlaðinn og hitnar gríðarlega. Það getur endað með eldsvoða.

„Svo virðist sem nokkuð algengt sé að bílar séu hlaðnir með óöruggum hætti. Að tenglar, lagnir og öryggi í rafmagnstöflu séu ekki gerð fyrir álagið sem fylgir hleðslunni og venjulegar framlengingarsnúrur notaðar þegar hleðslusnúran sjálf er ekki nægjanlega löng. Það er mjög varasamt, sérstaklega ef framlengingarsnúrum er rúllað upp að hluta en það eykur hættuna á bruna til muna,“ segir í tilkynningu VÍS.

Þá segir að rúmlega fimmtungur nýskráðra bíla á þessu ári sé með rafhleðslutengli, en alls eru 9.400 slíkir bílar hér á landi. „Gríðarlega mikilvægt er að rétt sé staðið að hleðslu til að koma í veg fyrir bruna. Sama hvort er á heimilum, vinnustöðum, við sumarhús eða annars staðar og hvetur VÍS alla til að gæta vel að þeim málum,“ segir í tilkynningunni en í henni fylgja nokkur góð ráð sem má lesa hér að neðan.

  • Fáið löggiltan rafverktaka með þekkingu á hleðslu rafbíla til að fara yfir málin áður en byrjað er að hlaða bíl, sama hvaða hleðsluaðferð er notuð þ.e. hleðslustöð eða hleðslutæki bíls
  • Huga þarf að eftirfarandi með raflögnina sem nota á:
    • Hver tengistaður má einungis hlaða einn rafbíl í einu
    • Hver tengistaður skal varinn með yfirstraumvarnarbúnaði (öryggi í rafmagnstöflu) sem einungis ver þennan tiltekna tengistað
    • Hver tengistaður skal varinn með bilunarstraumsrofa (lekastraumsrofa) sem einungis ver þennan tiltekna tengistað
    • Útleysisstraumur bilunarstraumsrofans skal vera 30mA og í flestum tilfellum þarf rofinn að vera af gerð B – ekki má nota gerð AC sem er algengasti rofinn á markaðnum (merkingar á viðeigandi rofum í rafmagnstöflu)
    • Stranglega er bannað að nota framlengingarsnúru, fjöltengi eða önnur „millistykki“ við hleðslu rafbíla
  • Alltaf er best og lang öruggast að hlaða bíl með sérhæfðri hleðslustöð með fasttengdri raflögn en nokkrir aðilar selja slíkar stöðvar hér á landi
  • Ef þar til gerð hleðslustöð er ekki notuð heldur hlaðið með hleðslustæki bíls þarf að huga að:
    • Viðkomandi tengistaður skal uppfylla öll skilyrðin sem getið er hér að ofan
    • Nota jarðtengdan tengil allt að 32A sem hentar til hleðslu rafbíla
    • Ekki má nota hefðbundna heimilis einfasa 16A tengla nema hleðslustraumur hleðslustöðvar sé takmarkaður við 10A að hámarki
    • Þyngd stjórnbox á hleðslusnúru má ekki hanga í tengli þar sem tengill og stjórnbox geta hitnað við það
  • Ekki nota hleðslusnúru eða annan búnað sem hefur skemmst
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins
Fréttir
Í gær

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu