fbpx
Laugardagur 07.desember 2024
Fréttir

VR gefur ekki upp hvað auglýsingarnar með Jóni Gnarr kostuðu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 13. desember 2018 09:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

VR, stærsta stéttarfélag landsins, gefur ekki upp hvað umtalaðar auglýsingar félagsins með Jóni Gnarr, leikara og fyrrverandi borgarstjóra, í hlutverki Georgs Bjarnfreðarsonar kostuðu.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag og þar er haft eftir Stefáni Sveinbjörnssyni, framkvæmdastjóra VR, að félagið gefi ekki upp kostnaðartölur við verkefni sem þessi.

Eins og komið hefur fram fer Jón Gnarr á kostum í nýjum auglýsingum fyrir VR, en þar bregður hann sér aftur í gervi Georgs Bjarnfreðarsonar, sem hann gerði að þjóðþekktri persónu í Vaktar þáttaröðunum.

Í fyrstu auglýsingunni er Georg yfirmaður og væntanlega eigandi verslunarinnar Georgskjör, er ung stúlka mætir til hans í atvinnuviðtal.

Markmið VR með auglýsingunum er að vekja athygli á kjörum félagsmanna og Georg er ágætis viðmið um hvernig ekki á að gera hlutina. Auglýsingar verða alls fimm talsins.

Í Fréttablaðinu er bent á að semja hafi þurft um höfundaréttarmál við Ragnar Bragason, leikstjóra og skapara Vaktaseríanna, og Jón Gnarr sjálfan. En VR gefur ekki upp kostnaðinn.

„Auglýsingastofa okkar, Hvíta húsið, sá um gerð auglýsingarinnar og samninga við þá Ragnar Bragason og Jón Gnarr,“ segir Stefán við Fréttablaðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Prinsippmaður lagði ÁTVR en eftir standa áleitnar spurningar – Hvað með samkeppnislög og neysluvísitöluna?

Prinsippmaður lagði ÁTVR en eftir standa áleitnar spurningar – Hvað með samkeppnislög og neysluvísitöluna?
Fréttir
Í gær

Furðulegt brot konu fyrir norðan – Dreifði mynd af sínum fyrrverandi alblóðugum til vina og vandamanna

Furðulegt brot konu fyrir norðan – Dreifði mynd af sínum fyrrverandi alblóðugum til vina og vandamanna
Fréttir
Í gær

Bjarni veitir Hval hf veiðileyfi til fimm ára

Bjarni veitir Hval hf veiðileyfi til fimm ára
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Daníel Örn fær 4 ára dóm fyrir manndrápstilraun – Stakk lækni í hálsinn við Lund

Daníel Örn fær 4 ára dóm fyrir manndrápstilraun – Stakk lækni í hálsinn við Lund