fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Hver er óþekkti maðurinn sem kom Hallgrími til bjargar?


Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hann Hallgrímur Jökull Ámundason varð fyrir því skelfilega óhappi er hann átti leið um Vesturbæinn að eitt hjólið fór undan bílnum hans fór af og hann var því aðeins á þremur hjólum. Boltarnir höfðu losnað og fundust hvergi en dekkið var þó sjáanlegt. Nú voru góð ráð dýr. Hvað átti Hallgrímur að gera? Fyrir aftan hann voru bílar sem komust ekki áfram.

En þá birtist skyndilega bjargvættur dagsins, ótrúlega hjálpsamur og úrræðagóður maður. Hallgrímur birtir greinargóða frásögn um málið í Facebook-hópnum Vesturbærinn og er hún svohljóðandi:

Langar að þakka óþekkta Vesturbæingnum. Lenti í því óláni um hádegi í dag að ég missti dekk undan bílnum mínum í hjarta Vesturbæjarins, á rauðu ljósi beint fyrir framan Melabúðina. Aðstæður voru erfiðar því aðrir bílar áttu bágt með að komast framhjá. Ég var kominn með kranabílaþjónustuna á bið í símanum (þriðji í röðinni, vinsamlegast bíddu á línunni) og hugsaði með óttablöndnum andvara um óþolinmóðu bílstjórana í röðinni fyrir aftan mig. Þá vindur sér út úr næsta bíl fyrir aftan bjargvættur dagsins, fjölskyldumaður með alla familíuna í sunnudagsbíltúr, krakkarnir merktir KR í bak og fyrir (þannig vissi ég að hann var heimamaður). Á þessu augnabliki er ég aðeins á þremur hjólum, með gangtruflanir í taugakerfinu og úr mér allt loft. Bjargvætturinn var á dökkbláum Audi (gæti hafa verið gulur Skódi, ég var annars hugar) og stakk upp á því heillaráði að við tækjum einn felgubolta af hinum dekkjunum og tylltum lausa dekkinu aftur á svo ég kæmist í var fyrir hornið og aftur í náð Vesturbæinga. Ég tjakkaði upp bílinn meðan fjölskyldan gekk á dekkjahringinn og losaði bolta af á stöku stað. Svo skelltum við dekkinu undir á mettíma. Ég rétt náði að kasta kveðju og þökkum á fjölskylduna áður en ég þurfti að koma bílnum frá. Langaði að ítreka hér í kjölfarið innilegar þakkir til þeirra, ekki gott að burðast svona einn með þakklætið og koma því ekki í farveg. Semsagt, kærar þakkir fyrir hjálpina góðu Vesturbæingar!

Hver skyldi hann vera, þessi bjargvættur? Við vitum að hann er KR-ingur. En gaman væri ef hann gæfi sig fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Í gær

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Í gær

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Í gær

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“