Steinar Berg Ísleifsson lagði Bubba Morthens í meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn honum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu í morgun. Voru orð Bubba í þættinum Popp og rokksaga Íslands, sem RÚV stóð að framleiðslu á og sýndi, dæmd dauð og ómerk, þurfa Bubbi og RÚV hvort um sig að greiða Steinari Berg 250.000 kr. Í miskabætur ásamt 2 milljónum króna í málskostnað.
Þá er RÚV gert að birta dómsorð þessa dóms og forsendur í dagskrá sjónvarps innan tveggja vikna frá uppkvaðningu dómsins. RÚV má heldur ekki endurflytja þáttinn. Þetta kemur fram í dómi héraðsdóms sem DV hefur undir höndum.
Upphaf ósættis Steinars og Bubba má rekja til ummæla Bubba þar sem hann sagði að að útgáfufyrirtæki Steinars hefði grætt óeðlilega mikið á plötum Egó á sínum tíma og hljómsveitarmeðlimir fengið lítið fyrir sinn snúð. Var Steinar ósáttur við þessi ummæli og sagði lítinn hagnað hafa verið af plötum sveitarinnar.
Eftir sýningu þáttarins í mars 2016 gengu ásakanir þeirra á milli. Steinar sakaði Bubba um að gera tilraun til að sverta mannorð sitt á meðan Bubbi sagði að samningarnir sem gerðir voru á sínum tíma hefðu verið ömurlegir. Steinar Berg hefði verið í yfirburðastöðu og nýtt sér þá.
Í samtali við DV haustið 2016 sagði Steinar Berg að ásakanir Bubba væru rakalaus þvættingur. Og vildi hann að Bubbi myndi biðjast afsökunar. Steinar, sem rekur tónlistartengda ferðamennsku á Fossatúni í Borgarfirði, sagðist stöðugt áminntur á ásakanir Bubba. „Þetta hefur verið mér þungbært að vera með einhvern skítablett sem Bubbi klínir á mig og ég vil ekki hafa og er ósannur. Ég vil vera stoltur af mínum ferli, alla leið,“ sagði Steinar.
„Bubbi, þú kemst ekki upp með að fullyrða svona. Fyrirtæki mitt skilaði aldrei hagnaði af nýjum íslenskum útgáfum, ekki eitt einasta rekstrarár, heldur hélt sér á floti með innflutningi platna. Þú ert einfaldlega að reyna að sverta mig og mitt mannorð með órökstuddum dylgjum,“ sagði Steinar.