fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Fréttir

Steingrímur kynnist heilbrigðiskerfiu náið sem aðstandandi: „Ég hef horft upp á úrvinda heilbrigðisstarfsmenn gera sitt besta“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 22. október 2017 19:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef horft upp á úrvinda heilbrigðisstarfsmenn gera sitt besta, hjúkrunarfræðinga andvarpa yfir að geta ekki gert betur, lækna hrista höfuðið og sagt að kerfið nái bara ekki að sinna öllum þeim sem eru veikir. Með Guðs lukku, frekju, einbeittum brotavilja eða fyrir góðvild starfsfólks hefur þetta þó hingað til rétt naumlega gengið upp,“ skrifar Steingrímur Sævarr Ólafsson, almannatengill og fyrrverandi ritstjóri Pressunnar, í áhrifamiklum pistli á Facebook-síðu sinni.

Steingrímur segist hafa átt nánari kynni við heilbrigðiskerfið en hann hefði kært sig um, sem aðstandandi. Hann lýsir vandamálum vegna bilaðra tækja og tregðu í kerfinu. Allur tilfinningaskalinn hafi komið í sögu í samskiptum hans við þetta kerfi:

Stundum þarf maður að lenda í ákveðnum aðstæðum til að átta sig á mikilvægi þess öryggisnets sem þarf að vera til staðar í heilbrigðu þjóðfélagi. Síðustu misseri hef ég haft nánari kynni af íslensku heilbrigðiskerfi en ég hefði annars viljað. Sem aðstandandi hef ég upplifað með eigin augum að horfa upp á biðlistakerfi eftir þjónustu sem ég hef alist upp við að telja sjálfsagða. Ég hef horft á lækningatæki sem hanga saman með plástri – bókstaflega með plástri, séð ónotað, en nauðsynlegt, lækningatæki af því að það bilaði vegna varahlutaskorts eða aldurs, séð sjúklinga liggja á göngum þegar þeir ættu að vera að ná heilsu í næði en engin pláss verið laus, verið vísað frá vegna manneklu eða niðurskurðar, beðið klukkutímum saman eftir því einu að fá að hitta lækni.

Ég hef eytt ótal vinnustundum fyrir framan þjónustufulltrúa með fangið fullt af pappírum og skjölum vegna stöðu mála til þess eins að vera sendur milli aðila til að fá stimpil hér, kvittun þar, neitun á þriðja staðnum og eltingarleik við frumskóg af furðulegum opnunartímum og enn skrýtnari reglum sem allar virðast miða að því að gera manni sem erfiðast fyrir að fá sjálfsögð réttindi eða þjónustu fyrir þá sem geta ekki sinnt þessu hlutverki sjálfir. Og skýringin er yfirleitt alltaf fjárskortur.

Ég hef farið allan tilfinningaskalann þegar heilbrigðiskerfið kýlir mann beint á kjammann. Reiðin, sorgin, vonbrigðin, gleðin, vonin, höfnunin – allt þetta hefur heilbrigðiskerfið rétt manni síðustu misserin, en samt er ekkert annað hægt að gera en að halda áfram og taka næstu skref. Uppgjöf er aldrei valkostur, fjárskortur af hálfu hins opinbera á þessu sviði er það hins vegar, sama hvað stjórnmálaflokkurinn heitir.

Steingrímur brýnir stjórnmálamenn núna rétt fyrir kosningar til að leggja meira fé í heilbrigðiskerfið:

Viku fyrir kosningar segir kjósandinn ég við alla frambjóðendur:

Það eru til nægir peningar í íslensku þjóðfélagi til að hafa almennilegt heilbrigðiskerfi. Allar afsakanir um að það séu ekki til peningar eru bull. Um það vitna blússandi hagnaðartölur á öllum sviðum. Um það vitna allir hagvísar. Um það vitna allir ársreikningar. Um það vitna orð sjálfra stjórnmálamannanna sem fara með peningana, sem móta stefnuna, sem ÁKVEÐA hvort við ætlum að vera með almennilegt heilbrigðiskerfi.

Peningarnir eru til, þeir eru bara notaðir í aðra hluti eins og er. Að biðja um almennilegt heilbrigðiskerfi er ekki frekja, það er eðlileg ósk allra þeirra sem hafa og munu þurfa á því að halda, allra þeirra sem hafa horft upp á fjárvana kerfið sligast undan þeim þunga sem á því hvílir.
Sýnið nú manndóm, sama í hvaða flokki þið eruð, sama hvaða flokkar mynda næstu stjórn, sama hvað stefnumálin segja; og setjið meiri pening í heilbrigðiskerfið. Við þurfum á því að halda. Núna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp
Fréttir
Í gær

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum
Fréttir
Í gær

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skúli og stjórn WOW air sýknuð af 18,5 milljón evra skaðabótakröfu fjárfesta

Skúli og stjórn WOW air sýknuð af 18,5 milljón evra skaðabótakröfu fjárfesta