Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður er látinn, 86 ára að aldri. Páll fæddist í Vestmannaeyjum 25. Júlí 1930. Páll einbeitti sér að heimildarmyndum og þótti afar hæfur á sínu sviði og einn af okkar merkari kvikmyndagerðarmönnum. Greint er frá andláti Páls á Eyjar.net.
Þar segir að Páll hafi lært bókmenntir, líffræði og myndlist erlendis og lagði einnig stund á ljósmyndun áður en hann færði sig um set og hóf kvikmyndanám við New York University. Þá rak hann myndlistarskóla í Vestmannaeyjum í mörg ár sem hann setti sjálfur á fót.
Páll var einn af stofnendum Félags íslenskra kvikmyndagerðarmanna og var formaður um tíma. Á vef Eyjar.net segir:
„Hafa myndir Páls hlotið alþjóðleg verðlaun eins og Eldeyjan, Oddaflug, Nábúar, Æður og maður, Litli bróðir í Norðri, Sofa urtubörn í útskerjum, The Ice Age Horse og Öræfakyrrð frá 2004, kvikmynd um hálendi Íslands, ósnortin öræfi og stórvirkja framkvæmdir við Kárahnjúka. Páll Steingrímsson var sæmdur fálkaorðu forseta Íslands árið 2005.“