fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Mikill harmleikur þegar Hjalti Jakob 4 ára féll frá: Safnað fyrir foreldra litla drengsins

„Orð eru máttvana og fá ekki lýst þeirri sorg og þeim söknuði sem hvílir á aðstandendum“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Þriðjudaginn 5. júlí 2016 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjalti Jakob Ingason lést í bruna á Stokkseyri þann 1. júlí síðastliðinn. Hjalti var aðeins 4 ára gamall, fæddur 2. maí 2012. Litla samfélagið á Stokkseyri hefur verið lamað af sorg vegna fráfalls Hjalta. Styrktarreikningur hefur verið stofnaður fyrir fjölskyldu Hjalta Jakobs, en hann lætur eftir sig foreldra og tvær yngri systur.

Bænastund verður haldin í Stokkseyrarkirkju í kvöld klukkan átta. Þá hefur Bryggjuhátíð sem fara átti fram 8 til 10 júlí verið aflýst í ár af virðingu við aðstandendur. Hermundur Guðsteinsson fyrir hönd hátíðarhaldara segir á Facebook-síðu Bryggjuhátíðarinnar.

„Orð eru máttvana og fá ekki lýst þeirri sorg og þeim söknuði sem hvílir á foreldrum, systkinum og aðstandendum Hjalta Jakobs.“

Þar segir ennfremur:

„Við vottum foreldrum, systkinum og aðstandendum Hjalta Jakobs okkar dýpstu samúð og hluttekningu. Megi allt hið góða styrkja ykkur í sorginni og megi hlý minningin um ungan, fallegan, ljóshærðan dreng vaka í huga ykkar og hjörtum um ókomna framtíð.“

Styrktarreikningurinn er á nafni móður Hjalta Jakobs, Gunnhildar Ránar Hjaltadóttur. Þau sem geta aðstoðað fjölskylduna á þessum erfiðu tímum er bent á reikninginn hér fyrir neðan sem aðstandendur hafa stofnað fyrir fjölskylduna.

„Okkar von er að samfélagið vilji sjá til þess að unga fjölskyldan þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur ofan á þá miklu og ólýsanlegu sorg sem þau eru að ganga í gegnum.“

Reikningsnúmer: 0586-14-400054. Kennitala: 210686-4449. Margt smátt gerir eitt stórt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Í gær

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Í gær

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Í gær

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“