Handtökur í Guðmundar- og Geirfinnsmálum– Annar hinna handteknu sagði Erlu að hann hefði verið á staðnum
Stefán Almarsson og Þórður Jóhann Eyþórsson voru handteknir og færðir til yfirheyrslu í vikunni í tengslum við rannsókn setts saksóknara á morði Guðmundar Einarssonar sem hvarf sporlaust árið 1974. Stefán og Þórður hafa báðir komið við sögu lögreglu áður. Hafa þeir hlotið þunga refsidóma. Hefur Þórður tvö mannslíf á samviskunni en Stefán sat inni á Litla-Hrauni ásamt Kristjáni Viðari Viðarssyni sem hlaut 16 ára dóm vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála. Voru þeir samfangar nokkrum mánuðum eftir hvarf Guðmundar. Samkvæmt heimildum DV sinnaðist þeim Stefáni og Kristjáni innan veggja fangelsisins. Aðspurð segist Erla Bolladóttir hafa hitt Stefán fyrir nokkrum árum þar sem hann sagðist hafa verið viðstaddur þegar Guðmundur Einarsson lést. Fréttatíminn greindi frá nöfnum mannanna og í samtali við miðillinn kvaðst Stefán alsaklaus og það kæmi honum mjög á óvart að vera bendlaður við það.
Morgunblaðið fjallaði fyrst um málið í vikunni en þar sagði að rannsóknin beindist aðallega að því hvort mennirnir hefðu komið að flutningi á líki Guðmundar. Hvarf hans er hluti af Guðmundar- og Geirfinnsmálunum. Davíð Þór Björgvinsson, settur saksóknari í endurupptöku í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum staðfesti í samtali við DV að lögregla hafi fengið vísbendingar í málinu sem voru þess eðlis að rannsaka þyrfti þær betur. Það var því að frumkvæði hennar sem málið fór aftur að stað.
Stefán og Þórður voru í framhaldinu handteknir og færðir til skýrslutöku hvor í sínu lagi svo þeir gætu ekki borið saman bækur sínar. Að skýrslutöku lokinni voru þeir látnir lausir. Samkvæmt heimildum DV harðneituðu Stefán og Þórður að hafa orðið Guðmundi að bana eða falið lík hans.
Í samtali við DV sagði Davíð Þór að hann teldi málið viðkvæmt en telur líklegt að það leysist að lokum.
„Þetta er viðkvæmt fyrir alla aðila á þessu stigi málsins og ekki við hæfi að fara nánar út í það.“
Sú saga hefur verið lífseig að Stefán hafi bent á Kristján Viðar og Sævar Ciesielski í tengslum við hvarf Guðmundar Einarssonar við yfirheyrslur hjá lögreglu á Litla Hrauni eftir að Guðmundur Einarsson hvarf. Seinna játaði Stefán fyrir fjölmiðlamönnum að bera ábyrgð á hvarfi Guðmundar en neitaði harðlega að hafa bendlað Sævar, Kristján og Erlu við hvarfið. Mun Stefán hafa sagt fjölmiðlamönnum að hann hefði ekið á Guðmund og komið honum fyrir í hrauninu í Hafnarfirði.
Fjölmiðillinn birti ekki viðtalið við Stefán þar sem spurning var hvort framburðurinn þætti trúverðugur. Stefáni var sleppt og kemur nafn hans hvergi fyrir í þeim tíu þúsund skjölum sem fjalla um þetta dularfulla mál. Fyrir 20 árum var ábendingu um hugsanleg tengsl Stefáns við málið komið á framfæri við lögreglu en virðist ekki hafa verið könnuð nánar. Stefán og Þórður harðneituðu allri aðkomu að málinu hjá lögreglu og var sleppt að loknum yfirheyrslum.