fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Erla fór á fund Stefáns: „Ákvað að fara og tala við hann og leita sannleikans“

Handtökur í Guðmundar- og Geirfinnsmálum– Annar hinna handteknu sagði Erlu að hann hefði verið á staðnum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. júní 2016 17:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Almarsson og Þórður Jóhann Eyþórsson voru handteknir og færðir til yfirheyrslu í vikunni í tengslum við rannsókn setts saksóknara á morði Guðmundar Einarssonar sem hvarf sporlaust árið 1974. Stefán og Þórður hafa báðir komið við sögu lögreglu áður. Hafa þeir hlotið þunga refsidóma. Hefur Þórður tvö mannslíf á samviskunni en Stefán sat inni á Litla-Hrauni ásamt Kristjáni Viðari Viðarssyni sem hlaut 16 ára dóm vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála. Voru þeir samfangar nokkrum mánuðum eftir hvarf Guðmundar. Samkvæmt heimildum DV sinnaðist þeim Stefáni og Kristjáni innan veggja fangelsisins. DV hefur fjallað ítarlega um málið. Fréttatíminn greindi frá nöfnum mannanna og sagði Stefán í samtali við miðilinn að hann væri alsaklaus og þetta kæmi honum mjög á óvart.

Aðspurð segist Erla Bolladóttir hafa hitt Stefán sem skömmu eftir að Sævar Ciesielski lést árið 2011. Hún staðfesti þetta þegar blaðamaður DV bar undir hana nafn mannsins sem handtekinn var. Hún hefur ekki rætt það opinberlega áður en féllst á að tala um það við DV. Erla fór til fundar við Stefán og þar sagðist hann hafa verið á staðnum þegar Guðmundur Einarsson lést. Frásögn Stefáns var sama frásögn og Erlu var gert að undirrita eftir langar og strangar yfirheyrslur hjá lögreglunni.

Það var alls enginn vinskapur

Erla segir að stuttu eftir að hún var bendluð við málið og yfirheyrð hafi hún haft fregnir af því að Stefán hefði sagt lögreglunni að Kristján Viðar Viðarsson tengdist hvarfinu á Guðmundi. „Einhver sagði mér þetta, en ég veitti því litla athygli. Það voru margir sem vildu ræða þessi mál við mig á sínum tíma en ég var lítt fær um það þá. Í gegnum tíðina hef ég heyrt af þessu,“ segir Erla. Efnislega var sagan sú að Stefán hefði sagt lögreglunni að Kristján Viðar tengdist málinu, en það mun hann hafa gert til að hefna sín á Kristjáni vegna persónulegra átaka þeirra í milli. Af fréttaflutningi síðustu daga hefur mátt skilja að mennirnir sem handteknir voru í vikunni hafi verið félagar þeirra sem bendlaðir voru við málið á sínum tíma. Erla þekkti ekki Stefán né Þórð og hafði aldrei heyrt á þá minnst.

Fór á fund Stefáns

Ég var með þá von að hann myndi treysta mér nóg til að segja mér eins og satt væri.

Þegar Sævar lést var Erla þegar byrjuð að velta því fyrir sér hvernig hún gæti farið fram á að málin yrðu tekin upp. „Ég var byrjuð að vinna að beiðni um endurupptöku. Þá fór þessi bolti að rúlla og allt komst í rót á ný. Þessi maður hafði einu sinni reynt að nálgast mig en nú ákvað ég að fara og tala við hann og leita sannleikans,“ segir hún. „Ég var með þá von að hann myndi treysta mér nóg til að segja mér eins og satt væri, enda hafði hann reynt að tala við mig áður.

Ég hafði samband við hann, hann var mjög spenntur fyrir að hitta mig. Ég fór heim til hans daginn eftir. Ég var mætt þangað fyrir hádegi en hann var byrjaður að drekka en var viðræðuhæfur. Hann var mjög spenntur að segja mér frá því að hann hefði sjálfur verið á staðnum þegar Guðmundur lét lífið. Svo sagði hann söguna. Á meðan ég hlustaði á hann áttaði ég mig á því að hann var að segja mér atburðarásina, nokkuð nákvæmlega, sem ég upphaflega skrifaði undir að hafa orðið vitni að. Sem ég varð aldrei vitni að. En lögreglan lagði til söguna og ég samþykkti á endanum og skrifaði undir. Beygði mig og skrifaði undir til að vera látin laus,“ segir Erla en yfirheyrslan sem hún vísar til stóð í rúmar tíu klukkustundir og aðrar tíu klukkustundir án lögfræðings.

Þar skrifaði Erla undir vitnisburð þess efnis að Kristján Viðar, Sævar og Tryggvi Rúnar hefðu verið á heimili hennar og Sævars. Þeir hefðu flutt eitthvað þungt í laki sem hún taldi hafa verið mannslíkami. Líkt og fram hefur komið er þessi vitnisburður Erlu ekki talinn trúverðugur lengur, hún neitar því sjálf að þetta hafi gerst og í skýrslu starfshóps um málin kemur fram að það sé hafið yfir allan skynsamlegan vafa að framburður Erlu í málunum var óáreiðanlegur.

Líkindin

Það sem sló Erlu í heimsókn sinni til Stefáns voru líkindi þessara frásagna, það er fyrstu skýrsluna sem hún skrifaði undir og sögu mannsins. Hún segir að það geti ekki verið að viðkomandi hafi haft nokkra þekkingu á gögnum málsins og að frásögnin af því hvernig andlát Guðmundar bar að hefði breyst það mikið við rannsókn málsins að dæmt var út frá allt annarri frásögn. „Hann þekkir ekki atburðarásina í gegnum skýrslutökurnar, þetta átti allt eftir að breytast og þegar það var dæmt í þessu var hún allt önnur,“ segir Erla.

„Þar fékk ég staðfestingu á að hann hafði sagt lögreglunni þetta upphaflega og sagði án efa að Kristján hefði sagt sér þetta,“ segir Erla. En Erla trúði honum ekki. Stóð upp og sagði Stefáni að hún hefði ekki verið þangað komin til að hlusta á þvætting. Nú finnst henni málið horfa öðruvísi við sér. „Það hafði aldrei hvarflað að mér að hann hefði komið nálægt þessu, en nú finnst mér að rökin séu byrjuð að hníga að því að hann hafi komið þarna nærri. Af hverju ætti hann annars að ná sér niður á Kristjáni með einhverju sem hefði gerst tveimur árum áður nema það hefði verið honum hugfast. Hann sagði mér að hann hefði verið þarna.“

Erla á erfitt með að koma að því orðum hvernig það er að upplifa handtökur og yfirheyrslur sem tengjast málinu.
„Ég sagði við dóttur mína að mér liði eins og einhver hefði hent mér inn í þvottavél og kveikt á. En þetta segir mér að lögreglan er viljug að komast að hinu sanna. Fólk er að horfa í rétta átt og vill vinna þetta vel. Það er það sem við erum öll búin að þrá,“ segir hún.

Stefán og Þórður harðneituðu allri aðkomu að málinu hjá lögreglu og var sleppt að loknum yfirheyrslum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Í gær

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Í gær

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Í gær

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“