fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026

Kynlífsherbergi í Reykjavík – Þú velur klukkan hvað og hversu lengi

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 15. júlí 2020 15:23

Skjáskot af sexroom.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er hægt að leigja kynlífsherbergi í miðbæ Reykjavíkur í gegnum vefsíðuna Sexroom.is. Umrætt herbergi er staðsett í Reykjavík, það er útbúið kynlífstækjum, rólu, bekk, rúmi, auk baðherbergis. Mannlíf greinir frá þessu.

Herbergið er staðsett í Reykjavík. Fyrsti klukkutíminn kostar 15.000 krónur, eftir það kostar hver klukkutími 6.000 krónur, innifalið í verðinu er þrif á herberginu.

Þegar farið er inn á vefsíðuna, er einfaldlega hægt að velja klukkan hvað þú vilt mæta og hversu lengi þú vilt vera. Þó virðist vera mikilvægt að notendur undirriti ítarlega skilmála.

Skilmálana má finna á heimasíðunni. Þar má finna ýmsar upplýsingar líkt og að íslensk lög gildi í herberginu, það sem gerist inn í herberginu sé á ábyrgð leigjanda, ekki leigusala. Auk þess kemur fram að leigusali hafi ekki rétt á aðgangi að herberginu á leigutímabilinu nema að grunur liggi á um að brotið sé á skilmálum samningsins.

„Fólk er mjög ánægt með hvað aðstaðan er hrein og snyrtileg og hvað þetta er allt saman pró. Fólki finnst þetta vera alveg til fyrirmyndar.“

Sagði ónafngreindur eigandi Sexroom.is í samtali við Mannlíf. Hann sagði að um væri að ræða tilraunaverkefni sem hefði byrjað mjög vel.

„Við opnuðum fyrir þjónustuna fyrir svona mánuði síðan og viðbrögðin hafa verið góð hjá þeim sem hafa prófað herbergið,“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Útför Björgvins Halldórssonar fer fram í dag

Útför Björgvins Halldórssonar fer fram í dag
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Newcastle horfir til framherjans sem Bayern ætlar ekki að kaupa

Newcastle horfir til framherjans sem Bayern ætlar ekki að kaupa
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Þess vegna ættirðu ávallt að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina

Þess vegna ættirðu ávallt að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Besta deildin: Valur sótti sterkan sigur í Garðabæ – Breiðablik og Víkingur með öfluga sigra

Besta deildin: Valur sótti sterkan sigur í Garðabæ – Breiðablik og Víkingur með öfluga sigra

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.