fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024

Biðst ekki afsökunar á kjólnum sem er talinn hafa brotið lög í heimalandinu

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 11. júní 2019 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víetnamska fyrirsætan Ngoc Trinh gæti átt von á hárri sekt út af kjólnum sem hún valdi að vera í við frumsýningu myndarinnar A Hidden Life á Cannes-kvikmyndaverðlaunahátíðinni.

Víetnamski menningar-, íþrótta- og ferðamálaráðherrann, Nguyen Ngoc Thien, segir að kjóllinn hafi strítt gegn siðferði, móðgað og misboðið almenningi, og hefur óskað eftir formlegri rannsókn á því hvort kjóllinn hafi brotið siðferðislög í Víetnam, sem er afar ströng löggjöf og getur það varðað háum sektum að brjóta gegn þeim. Talsmaður ráðuneytisins sagði að kjóllinn hefði „strítt gegn víetnamskri hefð og fólk ætti hiklaust að gagnrýna svona siðlausa háttsemi.“

Ngoc kærir sig samt kollótta um gagnrýnina og sagði í samtali við Express að það væri ógerlegt að gera öllum til geðs, það sem skipti meginmáli var að henni leið vel í kjólnum.

„Mér hefur verið hrósað mikið fyrir fatavalið. Mér er sama þó fólk gagnrýni það því mér fannst ég falleg í kjólnum, sem kom vel út á rauða dreglinum í Cannes,“ sagði Ngog í samtali við Express.„Ég get ekki gert öllum til geðs.“

Frétt Express

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Sancho hefur engan áhuga á að spila fyrir Manchester United

Sancho hefur engan áhuga á að spila fyrir Manchester United
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Mourinho næstur til að elta peningana?

Mourinho næstur til að elta peningana?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Keypti sjálfan sig og var rekinn sex mánuðum síðar

Keypti sjálfan sig og var rekinn sex mánuðum síðar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hrafnkell: „Ég er ekki sammála þessu“

Hrafnkell: „Ég er ekki sammála þessu“
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Hjúkrunarfræðingur og raðmorðingi – Nú er búið að kveða upp dóm

Hjúkrunarfræðingur og raðmorðingi – Nú er búið að kveða upp dóm

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.