fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026

Chaka Khan – sjálf drottning fönksins – opnar Secret Solstice!

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 12. apríl 2017 13:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drottning fönksins, Chaka Khan mun opna Secret Solstice-tónlistarhátíðina á veglegri opnunarhátíð sem haldin verður fimmtudaginn 15. júní, daginn áður en hátíðin hefst formlega. Verður þetta í fyrsta skipti sem sérstök opnunarhátíð er haldin fyrir hátíðina síðan hún var gangsett árið 2014. Á opnunarkvöldinu munu ásamt henni koma fram hin goðsagnakennda hljómsveit SSSól og stuðboltarnir í Fox Train Safari.

Holy B elskar hana

„Ég elska Chaka Khan og hef dreymt um að spila með henni alla ævi, það er ótrúlegur heiður að vera að hita upp fyrir hana á opnunarhátíð Secret Solstice,“

segir sjálfur forsprakki sveitarinnar SSSÓL, Helgi Björnsson. Bætist þetta kvöld því við hina stórkostlegu dagskrá Secret Solstice sem inniheldur atriði á borð við Foo Fighters, The Prodigy, Rick Ross, Big Sean og fleiri.

 

Einnig mun ameríski indíáninn og listamaðurinn JoaqoPelli blessa hátíðarsvæðið fyrir viðburðinn þannig að hátíðargestir geta skemmt sér á vernduðu svæðinu undir miðnætursólinni. Mikla athygli vakti það þegar Shaman Duran, andlegur leiðtogi frá Bandaríkjunum opnaði hátíðina árið 2015 en hann lagði blessun sína á hátíðarhöldin og uppskar mikinn fögnuð hátíðargesta.

Hver verður leynigesturinn?

Sú hefð hefur tekið sér bólfestu hjá skipuleggjendum Secret Solstice að tilkynna leynigest ár hvert og verður að sjálfsögðu engin undantekning á því í ár. Í fyrra var það Sister Sledge og árið fyrir það var það Busta Rhymes en atriðið verður ekki tilkynnt fyrr en daginn sem opnunarhátíðin fer fram. Því er það mikil ánægja að tilkynna að leynigestur hátíðarinnar í ár mun koma fram á þessari opnunarhátíð.

 

Eins og áður hefur komið fram mun opnunarhátíðin fara fram 15. júní og bætist það kvöld því við tónlistarhátíðina sjálfa, hátíðargestum að kostnaðarlausu. Hinsvegar verður mjög takmarkað upplag af miðum sem gilda einungis á opnunarhátíðina. Munu þeir miðar kosta 5.900 krónur á meðan þeir fást en aðeins verða 2.000 slíkir miðar í boði. Þá verður hægt að kaupa eftir klukkan 11:00 á morgun, 13. apríl í gegnum miðasöluvef tix.is.

Miðar á tónlistarhátíðina sjálfa fást á heimasíðunni tix.is og secretsolstice.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Svona oft ættu karlar að fá morgunreisn í viku hverri miðað við aldur

Svona oft ættu karlar að fá morgunreisn í viku hverri miðað við aldur
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Mikil áfengisneysla, með löngu millibili, getur haft áhrif á lifrina

Mikil áfengisneysla, með löngu millibili, getur haft áhrif á lifrina
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Úkraínskur hermaður hakkaði sig inn á fund hjá rússneska hernum – „Ég drep ykkur alla“

Úkraínskur hermaður hakkaði sig inn á fund hjá rússneska hernum – „Ég drep ykkur alla“
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

ABBA-dæturnar fá stóran arf

ABBA-dæturnar fá stóran arf
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.