fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
Fókus

Undir Halastjörnu heimsfrumsýnd á stærstu kvikmyndahátíð Asíu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 7. september 2018 09:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undir Halastjörnu tekur þátt í World Cinema hluta Busan – stærstu kvikmyndahátíðar Asíu sem fram fer í Suður Kóreu 4. – 13.október og er þetta jafnframt heimsfrumsýning á myndinni.

Tvær íslenskar myndir eru á hátíðinni en Lof mér að falla er í sama flokki.

Undir Halastjörnu verður svo frumsýnd 12. október hér á landi en myndin er byggð á Líkfundarmálinu sem vakti gríðarlega athygli hér á landi árið 2004. Leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi er Ari Alexander Ergis Magnússon – aðrir framleiðendur eru Friðrik Þór Friðriksson og Kristinn Þórðarson og Leifur Dagfinsson hjá Truenorth.

Umsögn leikstjóra um myndina:
Hugmyndin að myndinni kviknaði út frá raunverulegum atburðum sem gerðust í Litháen og á Íslandi árið 2004. Þann 4. febrúar það ár fór kafari í höfnina á Neskaupstað til að kanna skemmdir á bryggjumannvirkum en fann í staðinn illa leikið lík sem hafði verið þyngt með keðjum og kastað í sjóinn.

Lögreglan hóf ýtarlega rannsókn og í ljós kom að líkið væri af 26 ára Litháa sem við köllum Mihkel í myndinni. Böndin bárust fljótt að smákrimmanum Bóbó sem var nýkominn til bæjarins frá Reykjavík og tveimur öðrum sem komið höfðu að heimsækja hann. Annar þeirra var Jóhann en hinn Igor, vinur Mihkels frá Litháen sem hafði búið nokkur ár á Íslandi og unnið fyrir Jóhann. Í myndinni er Litháen skipt út fyrir Eistland til að hlífa fólki sem tengist sögunni.

Leikstjóri: Ari Alexander Ergis Magnússon
Handritshöfundur: Ari Alexander Ergis Magnússon
Meðframleiðendur: Evelin Soosaar-Penttilä, Egil Ødegård Riina Sildos, Jörundur Rafn Arnarson og Jóhann G. Jóhannsson
Aðalhlutverk: Pääru Oja, Kaspar Velberg, Atli Rafn Sigurðsson og Tómas Lemarquis
Vefsíða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Matthías Páll selur Kópavogskastalann

Matthías Páll selur Kópavogskastalann
Fókus
Fyrir 3 dögum

Konunglegur lausaleikskrógi afhjúpaður – „Ég er líffræðilegur faðir Clements“

Konunglegur lausaleikskrógi afhjúpaður – „Ég er líffræðilegur faðir Clements“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ætlaði ekki að kynnast framtíðarmakanum á stefnumótaforriti en þökk sé vinkonu gaf hún því tækifæri

Ætlaði ekki að kynnast framtíðarmakanum á stefnumótaforriti en þökk sé vinkonu gaf hún því tækifæri
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kara lifði af martröð á götunni: „Ég hugsaði: Hann er að fara að drepa mig“

Kara lifði af martröð á götunni: „Ég hugsaði: Hann er að fara að drepa mig“