fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025

Tilnefningar til íslensku þýðingaverðlaunanna kynntar

Orlando, Walden, Veisla í greininu, Sorgin í fyrstu persónu og Doktor Proktor

Kristján Guðjónsson
Sunnudaginn 3. desember 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku var tilkynnt hvaða fimm þýðingar eru tilnefndar til Íslensku þýðingaverðlaunanna 2017, en verðlaunin verða afhent í febrúar. Þýðingaverðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2005 fyrir vandaða þýðingu á fagurbókmenntaverki. Dómnefndina í ár skipa þau Ingunn Ásdísardóttir þýðandi og þjóðfræðingur, Steinþór Steingrímsson íslenskufræðingur og Helga Soffía Einarsdóttir þýðandi.

Eftirfarandi verk eru tilnefnd til verðlaunanna í ár.

  • Walden eftir Henry David Thoreau í þýðingu Elísabetar Gunnarsdóttur og Hildar Hákonardóttur
    (útgefandi: Dimma).

  • Veisla í greninu eftir Juan Pablo Villalobos í þýðingu Maríu Ránar Guðjónsdóttur. (útgefandi: Angústúra)

  • Sorgin í fyrstu persónu eftir Ko Un í þýðingu Gyrðis Elíassonar. (útgefandi: Dimma)

  • Doktor Proktor eftir Jo Nesbö í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar. (útgefandi: Forlagið)

  • Orlandó eftir Virginiu Woolf í þýðingu Soffíu Auðar Birgisdóttur. (útgefandi: Opna)


Hér fyrir neðan má lesa umsögn dómnefndarinnar um tilnefndu verkin:

Walden

„Wald­en er eitt af höfuðverk­um banda­rískra bók­mennta og segja má að hún marki upp­hafs­spor í vest­rænni hugs­un um nátt­úru­vernd og sam­band manns og nátt­úru. Sam­vinnuþýðing Elísa­bet­ar Gunn­ars­dótt­ur og Hild­ar Há­kon­ar­dótt­ur er ákaf­lega vel heppnuð og fang­ar 19. ald­ar stemn­ingu og tær­leika þessa klass­íska texta á sér­lega vandaðri ís­lensku án þess að vera gam­aldags. Eft­ir­mál­ar og skýr­ing­ar þýðenda bera vott um ígrundaða vinnu og teikn­ing­ar Hild­ar gefa bók­inni aukið gildi. Að auki má taka fram að bók­in er mjög fal­leg­ur prent­grip­ur.“

Veisla í greninu

„Veisla í gren­inu er átak­an­leg en jafn­framt grát­bros­leg saga um ein­angrað barn í hrotta­leg­um heimi. Sag­an er lögð i munn barns­ins en full­orðins­legt orðfærið skap­ar spennu milli hins barns­lega og hins mis­kunn­ar­lausa og kem­ur upp um brengl­un­ina í til­veru barns­ins. María Rán held­ur listi­lega vel í tón og takt sög­unn­ar og fram­andleiki bæði sögu­sviðs og aðstæðna kem­ur skýrt fram. Hér er á ferðinni stór saga í lít­illi bók.“

Sorgin í fyrstu persónu

„Úrval ljóða suður-kór­eska skálds­ins Ko Un sem hér kem­ur fyr­ir sjón­ir ís­lenskra les­enda er nokkuð mikið að vöxt­um, en þó aðeins brot af höf­und­ar­verki Ko Un. Gyrðir Elías­son miðlar hér fram­andi skáld­heimi af al­kunnri vand­virkni og orðlist og fær­ir okk­ur ljóð frá fjar­læg­um heims­hluta á áreynslu­lausri og heill­andi ís­lensku, auk þess að rita góðan inn­gang um skáldið og verk hans.“

Doktor Proktor

„Bæk­urn­ar um Doktor Proktor, Búa og Lísu ein­kenn­ast af gleði og stór­karla­legri at­b­urðarás. Í þýðing­um sín­um gef­ur Jón St. Kristjáns­son sprelli, ærsl­um og upp­finn­inga­semi laus­an taum­inn með fjöl­breyti­legri orðasmíð og blæ­brigðaríku orðfæri og mál­notk­un sem kæt­ir og gleður bæði börn og full­orðna. Atarna var kúnstugt les­efni. Bæk­ur þessa árs um Doktor Proktor eru að vísu tvær, og er hér ekki gert upp á milli þeirra.“

Orlando

„Það er mik­ill feng­ur að fá nú á ís­lensku skáld­sög­una Or­lando, eitt af lyk­il­verk­um enskra bók­mennta. Í verk­inu kann­ar höf­und­ur­inn viðfangs­efni sem koma við alla menn á öll­um tím­um, ást­ina, skáld­skap­inn, tím­ann og þrosk­ann svo fátt eitt sé nefnt. Þýðing Soffíu Auðar er framúrsk­ar­andi vönduð og nost­ur­sam­leg en jafn­framt leik­andi létt og fjör­leg og hinn hisp­urs­lausi stíll höf­und­ar­ins kem­ur vel fram í þýðing­unni. Enn frem­ur rit­ar þýðand­inn afar gagn­leg­an eft­ir­mála og ít­ar­leg­ar texta­skýr­ing­ar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

UNiO er ný stafræn markaðsstofa

UNiO er ný stafræn markaðsstofa
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Hefur sérstakar áhyggjur af þessum nýja leikmanni United – „Það þarf að laga þetta og það strax“

Hefur sérstakar áhyggjur af þessum nýja leikmanni United – „Það þarf að laga þetta og það strax“
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Endurkoma Jude Bellingham í kvöld

Endurkoma Jude Bellingham í kvöld
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Líttu aftur – Aðdáendur héldu Jennifer Lopes vera aðra stórstjörnu

Líttu aftur – Aðdáendur héldu Jennifer Lopes vera aðra stórstjörnu
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Tvö stórlið vildu Sterling í sumar – Æfir nú einn og hefur ekki séð Maresca í fleiri mánuði

Tvö stórlið vildu Sterling í sumar – Æfir nú einn og hefur ekki séð Maresca í fleiri mánuði
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

„Bleika slaufan hefur alltaf snert við mér“

„Bleika slaufan hefur alltaf snert við mér“