fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Pressan

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er heilinn sem ber eiginlega ábyrgð en þegar kemur að andlegri lipurð þá er ekki hægt að halda aftur af tungunni og hún endar með að setja orð á flest. Niðurstöður rannsóknar sýna að þetta getur tengst því hversu langt þú átt eftir ólifað.

Ef þú hugsar jafn hratt og þú talar, þá geturðu glaðst, því þá áttu líklega mörg ár eftir ólifuð. Auðvitað er þetta ekki svona einfalt í raun og veru en niðurstaða nýrrar rannsóknar er að andleg geta gegni afgerandi hlutverki þegar kemur að öldrunarferlinu.

Paolo Ghisletta, prófessor í sálfræði við háskólann í Genf í Sviss, stýrði rannsókninni. Þátttakendur í henni voru á aldrinum 70 til 105 ára og var fylgst með fólkinu fram að andláti þess. Vísindamennirnir mældu níu hugræna þætti hjá fólkinu og komust að því að einn þeirra er mjög mikilvægur þegar kemur að öldrun.

„Hversu mörg dýr geturðu nefnt á 90 sekúndum? 10? 15? 30? 60?“ Svarið við þessari spurningu getur gefið vísbendingu um hvernig heili þinn mun starfa eftir því sem árin færast yfir og þar með hvernig líkaminn mun eldast segir í umfjöllun National Geographic Portugal um málið.

Vísindamennirnir notuðust við gögn úr rannsókn, sem náði yfir 18 ár, og lögðu nýtt mat á þau. Huglægir þættir þátttakendanna voru mældir við upphaf rannsóknarinnar og þar til þeir létust. Niðurstaðan er að tveir af þessum þáttum koma að gagni við að spá fyrir um hvenær fólk deyr: talfærni og málnotkun.

Þátttakendur, sem gátu nefnt mjög mörg dýr á 90 sekúndum, voru líklegri til að lifa lengi. Það sem var mikilvægast tengdist því hversu hratt orðin mynduðust í undirmeðvitund fólks, auk fjölda orða sem fólkið notaði daglega.

Vísindamennirnir útiloka þó ekki að þörf geti verið á stærri rannsókn á þessu til að finna skýringuna á þessu og ýmsu öðru sem tengist heilastarfseminni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi