fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Pressan

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 13:30

Pössum hjartað okkar vel. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega birti Sanjay Bhojraj, hjartalæknir, færslu á Instagram sem snýst um einfaldan hlut sem flestir eiga að geta komið fyrir í daglegri rútínu sinni. Ekki skemmir fyrir að þetta getur allt að helmingað líkurnar á að fá hjartasjúkdóm.

„Þú þarft ekki að lífhakka þig til að lifa lengi. 20 mínútna göngutúr á dag getur verndað hjartað árum saman. Þetta getur einfaldlega bjargað lífi þínu,“ skrifaði hann að sögn Hindustan Times.

Hann bætti við að daglegur göngutúr geti „dregið úr hættunni á hjartasjúkdómum um allt að 50 prósent“.  Þar vísaði hann til rannsóknar frá 2023 sem sýndi fram á að 20 til 30 mínútna daglegur göngutúr geti dregið úr hættunni á að fá hjartasjúkdóm um 49%.

Það sem daglegir göngutúrar gera er að þeir hjálpa líkamanum við að halda blóðþrýstingnum í jafnvægi, bæta blóðflæðið og hjartaryþmann. Þeir verða einnig til þess að magn stresshormónsins kortísón minnkar og þess utan bæta þeir skapið!

Bhojraj sagði í færslu sinni að þetta snúist ekki um að æfa með mikilli ákefð eða hversu margir kílómetrar séu gengnir. Þetta snúist um að hreyfa sig reglulega. „Það þarf ekki að stunda æfingar í líkamsræktarstöð til að lifa lengi, þetta byrjar með göngutúr,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi