fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Fleiri milljarðamæringar núna en fyrir hrun – „Þeir eru bara ekki að flagga því“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 22. mars 2021 10:21

mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Ásgeir Jóhannesson er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Jón Ásgeir er einn þekktasti viðskiptamaður Íslandssögunnar og á árunum fyrir hrun var Baugur Group fyrirtæki hans með meira en 50 þúsund starfsmenn. Í þættinum segir Jón meðal annars frá augnablikinu þegar Davíð Oddsson sakaði hann í beinni útsendingu um að hafa reynt að múta sér:.

„Ég gleymi aldrei þessu augnabliki þegar ég heyrði í útvarpinu að forsætisráðherra landsins sakar mig um að hafa mútað sér með 300 milljónum. Ég var á Sóleyjargötunni með konunni minni og við horfðum á hvort annað og ég hugsaði bara: „Hvað er að gerast hérna?“ Þetta var svo ótrúleg saga, en svona fór þetta í loftið og það er ekki á hverjum degi sem forsætisráðherra lands segir í fjölmiðlum að reynt hafi verið að múta sér. Ég held að það hafi verið vín um hönd á þessum fundi Davíðs og Hreins og aðstoðarmaðurinn átti að hafa verið á bak við sófa. Það komu alls konar stórkostlegar lýsingar þegar það fór að flettast ofan af þessu,“ segir Jón, sem staðfestir jafnframt í viðtalinu að hann hafi síðar hitt Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar Erfðagreiningar, sem hafi sagt við sig: „Þú ert á svarta listanum hjá Davíð, en ég þeim hvíta, en við komumst hvorugir burt.“

„Já já, það er bara þannig, Kári orðaði þetta skemmtilega við mig og sagði að ég yrði alltaf á svarta listanum hjá Davíð og kæmist aldrei burt af honum.“

Keypti Fréttablaðið

Margir vilja meina að upphafið að einhverjum mestu átökum Íslandssögunnar megi rekja til þess þegar Jón Ásgeir keypti Fréttablaðið árið 2002. Hann harðneitar að það hafi verið gert í pólitískum tilgangi, heldur hafi það fyrst og fremst verið gert í þeim tilgangi að eiga fleiri möguleika á auglýsingamarkaði fyrir fyrirtæki sín.

„Við vorum með mörg fyrirtæki á Íslandi og þurftum að auglýsa og umhverfið á þessum tíma var gjörólíkt því sem er í dag og það voru ekki valkostir á hverju horni. Það þurfti að panta auglýsingar í Morgunblaðinu í janúar sem þú ætlaðir að nota í desember. Nánast 12 mánuði fram í tímann og verð voru líka hækkuð í desember og þegar mest þörf var á að auglýsa og við vorum mjög ósáttir við þetta. Það var stærsta ástæðan fyrir því að við ákváðum að fjárfesta í Fréttablaðinu. Þá gætum við komið fyrirtækjunum okkar á framfæri með ódýrari hætti. Það hljómar furðulega að tala um þetta núna, en það var ekkert Facebook eða Google og þú gast ekki rekið matvöruverslun á Íslandi ef þú auglýstir ekki í Mogganum.“

Viðurkennir mistök

Í þættinum viðurkennir Jón Ásgeir að það hafi verið mistök að stækka of mikið á árunum fyrir hrun og menn hafi á ákveðinn hátt misst sjónar af upprunanum:

„Menn voru of þandir og menn voru á of mörgum vígstöðvum. Það er ljóst. Ég held að það megi alveg segja að menn voru að fara of víða og í of ólíkar fjárfestingar. Það verður erfitt að fylgjast með öllu þegar umsvifin eru orðin svona mikil. Það er klárt eftir á að hyggja að ég var of nískur á að selja hluti. Það er mikið til í því þegar sagt er: „Never fall in love with your investments“ og það er mikið hægt að læra af því. Það er ágæt regla sem góður vinur minn sagði mér einu sinni að ef maður væri kominn með sjö fyrirtæki þyrfti maður að fækka í það minnsta einu. Ég held að það sé ágæt regla og að gefa sér tíma í því sem maður er í og klára það. Það er ein af þeim lexíum sem ég hef lært.“

84 fyrirtæki

Jón Ásgeir var þegar mest lét með 84 fyrirtæki og meira en 50 þúsund starfsmenn. Eitt umtalaðasta partýið á árunum fyrir hrun var Baugsdagurinn í Monakó árið 2007, þar sem Tina Turner söng meðal annarra:

„Það var annað andrúm á þessum tíma og kreðsan sem við vorum í var í þessu. Þetta voru ekki bara íslenskir kaupsýslumenn og þetta var á ákveðinn hátt andrúmsloftið á þessum árum. Við vorum að starfa erlendis og í þessu umhverfi voru partý með heimsfrægum tónlistarmönnum nánast hverja helgi og vakti enga sérstaka athygli þar. Menn áttuðu sig kannski ekki á því hvað þetta myndi vekja mikla athygli á Íslandi. Þetta hefur ekkert horfið og þessar samkomur eru enn í gangi erlendis.”

Man eftir augnablikinu

Jón Ásgeir segir í þættinum frá því þegar hann áttaði sig fyrir alvöru á því að mikið óveður væri í vændum í aðdraganda hrunsins 2008:

„Ég man eftir augnablikinu þegar ég vissi að það væri óveður í vændum. Ég var í gulum leigubíl í New York þegar Lárus Welding hringir í mig og segir að það sé vandamál með danskan banka sem eigi skuldabréf á bankann. Ég man eftir því að ég var ekki rólegur í fluginu á leiðinni heim. Það komu síðan furðulegustu vikur sem maður hefur upplifað þarna strax á eftir. Það var lítið sofið þessar vikur sem fóru í hönd.”

Maðurinn sem var árið 2007 kominn með meira en 50 þúsund starfsmenn byrjaði mjög snemma í viðskiptum og segir frá því í þættinum.

„Ég byrjaði að vinna hjá pabba þegar ég var 6 ára. Þá var ég að fylla á kók-kæli á SS búðinni í Austurveri. Bakterían kom fljótt í mann og eftir þetta kom blaðaútburður og ég seldi líka blöð niðri í bæ. Svo þurfti maður að rukka áskrifendurna einu sinni í mánuði og þar lærði maður fyrstu skrefin í bókhaldi. Ég held að margt viðskiptafólk á Íslandi af þessari kynslóð hafi lært mikið af því að selja og bera út dagblöð í æsku. Svo fór ég í að selja poppkorn úr poppkornsvagni á Seltjarnarnesinu. 12-14 ára var ég kominn með pulsuvagn líka og þá var ég kominn með stráka í vinnu fyrir mig, þannig að ég var kominn með mannaforráð nokkuð ungur,” segir Jón Ásgeir, sem rifjar líka í þættinum upp fyrstu árin í Bónus:

„Við byrjum með eina búð og það var engin bankalán að hafa. Við byrjuðum með milljón í hlutafé, sem hefur dugað Bónus síðan þá. Það hlutafé hefur aldrei verið aukið. Þegar við vorum búnir að borga alla reikningana í byrjun voru 50 þúsund krónur eftir á heftinu. Það þurfti að hugsa út í hvert einasta smáatriði og gera hlutina öðruvísi og fækka handtökum. Í stað þess að setja vörurnar inn á lager voru þær settar beint í hilluna og það var labbað inn á kælana eins og fólk þekkir í dag, en það þótti alveg fáránleg hugmynd. Það var mikið kvartað undan þessu fyrstu árin og fólk var að heimta að við myndum skaffa úlpur á meðan það væri að versla.”

Undir smásjá dómstóla

Jón Ásgeir hefur stærstan hlutann af þessari öld verið undir smásjá dómstóla. Fyrst í Baugsmálinu og síðar í málunum eftir hrun. Hann segir að allir verði litlir í baráttu við ríki, óháð fjárhagsstöðu:

„Það er alveg sama hvað þú átt mikið af peningum, á móti ríki ertu alltaf lítill. Lögregla, saksóknarar, aðgangur að símakerfum, tölvukerfum og fleiru, einstaklingurinn getur ekki komist í sömu stöðu. Þess vegna var fáránlegt þegar ríkisvaldið var farið að kvarta undan því að við værum að ráða okkur góða lögmenn,” segir Jón Ásgeir, sem játar því að hafa verið orðinn „paranoid“ á löngum köflum:

„Að sjálfsögðu, þú ert alltaf var um þig. Ég hef stundum útskýrt það þannig að alveg frá því að þessi dómsmál byrja hafi 25% af heilastarfseminni minni farið í að hugsa um þau og hafa áhyggjur af þeim. Mér líður eins og meirihlutann af þessari öld hafi það verið þannig og stundum hefur talan farið langt yfir 25%. Þú ert að glíma við ójafnan leik. Fyrst eftir að það var ráðist inn í Baug hélt ég að ég gæti útskýrt mál mitt, en síðan fór ég að sjá að það var verið að ástunda leikjafræði sem ég bjóst ekki við. Það var bara stanslaust grafið í næsta og næsta máli og kerfið kunni ekki að stoppa.“

Í þættinum ræða Sölvi og Jón um feril Jóns, eitt hatrammasta tímabil Íslandssögunnar, dómsmálin, seinni hálfleik í lífi hans og margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan eða hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=BXWtCe4eiqs&t=3445s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi