fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Þjálfari KA um bróðurmissinn: „Það var ekkert sem benti til þess að eitthvað væri að“

Tufa missti bróður sinn á sviplegan hátt í fyrra – Upplifir bæði reiði og sorg

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 15. september 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það var ekkert sem benti til þess að eitthvað væri að svo áfallið var mikið,“ segir Srdjan Tufegdzic, eða Tufa eins og hann er kallaður, þjálfari meistaraflokks karlaliðs KA í fótbolta. Tufa er í viðtali í Akureyri vikublaði þar sem hann ræðir meðal annars um bróðurmissinn, en yngri bróðir hans lést á sviplegan hátt í fyrra.

Kom KA upp um deild

Tufa hefur vakið athygli fyrir góðan árangur með KA-liðið í sumar, en liðið tryggði sér á dögunum sæti í Pepsi-deildinna eftir frábæran árangur í sumar. Tufa er upprunalega frá Serbíu en hann kom hingað til lands árið 2006 til að spila með KA. Frá árinu 2013 hefur hann hins vegar þjálfað liðið, fyrst sem aðstoðarþjálfari en síðan sem aðalþjálfari frá ágúst í fyrra.

Uppvaxtarárin í Serbíu góð

Tufa er fæddur árið 1980 í borginni Krusevac í Serbíu og í viðtalinu segir hann frá uppvaxtarárunum sem, þrátt fyrir stríð, voru góð.

„Við vorum mjög heppin en enginn úr okkar fjölskyldu flæktist inn í átökin. Maður horfði bara á þetta í sjónvarpinu. Lífið var samt erfitt og atvinnuleysi mikið og foreldrar mínir börðust við að skapa mér og bróður mínum eðlilegt líf,“ segir Tufa, en sem áður segir lést bróðir hans í fyrra. Hann svipti sig lífi.

Áfallið var mikið

„Það var ekkert sem benti til þess að eitthvað væri að svo áfallið var mikið. Ég fór strax út til mömmu og pabba en kom svo heim eftir jarðarförina. Mér hefur fundist betra að takast á við þetta í vinnunni. Þetta er búið að vera mjög erfitt og sérstaklega fyrir foreldra mína. Nú er ég eina barnið þeirra og ég veit að þau sakna okkar mikið og sérstaklega strákanna. Þeir stækka hratt. Það væri oft gott að hafa fjölskyldurnar nær eins og á afmælum og hátíðum. Fjölskyldan skiptir mjög miklu máli í Serbíu og þótt við eigum marga góða vini hér er það aldrei eins. En svona er lífið; maður getur ekki fengið allt sem maður vill,“ segir hann í viðtalinu.

Upplifir reiði og sorg

Hann segist í viðtalinu bæði hafa upplifað reiði og sorg vegna bróðurmissisins. „Tilfinningarnar breytast frá degi til dags. Einn daginn er ég reiður við hann. Hann hafði enga ástæðu til að gera þetta. Svo upplifi ég mikla sorg. Hann gerði líf okkar allra erfiðara með þessari ákvörðun og var sjálfum sér verstur. Hann var bara 29 ára og hafði ekki lifað lífinu til fulls. Það getur enginn sem ekki þekkir það af eigin raun að missa einhvern á þennan hátt sett sig í þessi spor. En lífið heldur áfram og það eina sem er í boði er að vera sterkur.“

Hér má lesa viðtalið við Tufa í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár