Gekkst undir aðgerð vegna endaþarmssigs árið 2012 – Kærði lækni vegna umdeildrar aðferðar – 75 prósent öryrki í dag
„Ég hélt í alvöru að ef ég fengi bætur þá myndi allt lagast. En það er víst ekki alveg þannig því ég sit enn í rúminu mínu klukkan hálfellefu á mánudagsmorgun með mitt sig og mína verki,“ segir Erla Kolbrún Óskarsdóttir sem höfðaði mál gegn kvensjúkdómalækni á Akranesi árið 2012. Hafði hún áður gengist undir aðgerð hjá umræddum lækni það ár sem hún segir hafa valdið sér óbætanlegum skaða. Var hún í vor metin 75 prósent öryrki. Hún fékk greiddar peningabætur í lok síðasta árs en segir þær þó lítið koma til móts við skaðann sem hún hafi hlotið.
DV fjallaði um mál Erlu Kolbrúnar árið 2014 en hún þurfti að gangast undir umrædda aðgerð vegna endaþarmssigs sem hún fékk í kjölfar fæðinga dætra sinna. Sagði Erla Kolbrún að í ljós hefði komið að læknirinn, Edward Kiernan, hefði við aðgerðina notað aðferð sem ekki hafi tíðkast í áratugi. Þá sagðist hún hafa upplifað gríðarmikinn sársauka og glímt við mikla andlega erfiðleika síðan.
„Ég hef fætt tvö börn án verkjalyfja en þetta var sársauki sem ég hafði aldrei upplifað áður og réði ekki við.“
Jafnframt kom fram að málið væri til skoðunar hjá embætti landlæknis, og að fjórar aðrar konur hefðu sent inn kvörtun til embættisins vegna hins umrædda læknis. Sjálfur vísaði Edward því á bug að aðferðin sem hann hafi notað við aðgerðina sé úrelt og sagði í samtali við DV: „Ég geri þessa aðgerð enn í dag alveg nákvæmlega eins.“
„Árið 2014 var ég næstum búin að enda líf mitt. En maðurinn minn sá við mér og bjargaði mér. Í kjölfarið lá ég inn á geðdeild í nokkurn tíma. Ég verð svona það sem eftir er. Ég get örugglega ekki átt fleiri börn. Við ætluðum að eiga eitt í viðbót,“ segir Erla í samtali við blaðamann DV í dag.
„En ég er mjög þakklátt fyrir dætur mínar. En þegar læknir, fæðingar læknir tekur það af mér að eiga barnið sem ég ætlaði mér þá er það mjög sárt og ósanngjarnt,“ segir hún jafnframt en auk þess að leggja fram kæru til Landlæknis á sínum tíma lagði hún einnig fram kæru til Sjúklingatrygginga. Þaðan fékk hún dæmdar bætur.
Erla Kolbrún tjáði sig á dögunum um málið í færslu á bloggsíðu sinni á dögunum þar sem hún segir meðal annars að í kjölfar aðgerðarinnar hafi tekið við fjögurra ára tímabil sem fól í sér endalausar bréfaskriftir til Landlæknis, Tryggingarstofnunar og Sjúkratrygginga Íslands.
Segir hún að áður en hún gekkst undir aðgerðina árið 2012 hafi hún lengi vel skammast sín fyrir það sem hrjáði hana. „Þetta er oft mjög falið vandamál því við skömmumst okkar fyrir þetta vandamál. En þetta er það algengt að það er óþarfi að skammast sín. Við erum margar þarna sem eigum þetta sameiginlegt.“
Henni var á sínum tíma ráðlagt að gangast undir aðgerðina á Akranesi þar sem þar væri styttri biðtími en á Landsspítalanum. Segir hún lækninn sem framkvæmdi aðgerðina hafa notast þar við aðgerð sem átti að vera hætt í notkun fyrir allavega 30 árum.
„Ég mun aldrei gleyma þeim sársauka eftir að ég vakna eftir aðgerðina. Versti sársauki sem ég hef fundið fyrir. Ég datt oft út vegna verkjana. Við tók tvær vikur þar sem dagarnir einkenndust af gráti, uppköstum, sjúkrabílum, nýjum og nýjum læknum,“ segir hún en hún gekkst í kjölfarið undir aðgerð á Landspítalanum þar sem saumarnir eftir fyrri aðgerðina voru dregnir úr. Í kjölfarið hafi allt farið í sama farið.
„Því ekki var hægt að laga það í sömu aðgerð því að allt draslið mitt að jafna sig. Við sigið bættist við taugaverkir sem koma frá taugum sem læknirinn á Akranesi eyðilagði með því að nota þessa úreltu aðferð sína. Ég glími með þessa verki daglega og stundum eru þeir óbærilegir.
Erla Kolbrún fékk greiddar út tryggingabætur á Þorláksmessu í fyrra en hún segir líf sitt aldrei eiga eftir að verða eins.
„Það eru engar peningabætur sem bæta upp skaðann. Skaðinn er skeður.Ég get ekki keypt íbúð eða hús fyrir upphæðina, nema jú auðvitað með því að taka 80 prósent lán eins og flestir., en það verður að koma í ljós með greiðslumat því ég hef lítið sem ekkert getað unnið síðan haustið 2012. Ég var í vor metin sem 75 prósent öryrki, það var mikið sjokk að vera 31 árs og allt í einu orðin 75 prósent öryrki,“
ritar hún jafnframt en hún segir eiginmann sinn hafa staðið eins og klettur við hlið hennar í gegnum þessar raunir auk þess dætur hennar tveir gefi henni ástæðu til að halda áfram með lífið.
Ég hef reynt að vera opin með þetta allt saman og reynt að miðla minni reynslu af þunglyndi og kvíða. Ég vonaði að miðlun mín myndi hjálpa einhverjum öðrum þarna úti, en mér finnst ég bara öskra út í tómt.“