fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fókus

„Mér var stungið í ógeðslega skítugan einangrunarklefa“

Garðar Heiðar stendur í forræðisdeilu við íslenska barnsmóður sína – Lögheimili hans var flutt án hans vitundar til Spánar

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 16. ágúst 2016 14:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brot úr greininni „Ég þrái að sjá börnin mín aftur“ í vikublaði DV

„Ég hafði pantað tíma þremur vikum fyrr en þá hafði ég fengið upplýsingar um að ég gæti hafið ferlið einn hjá sýslumanni eftir að hafa talað við fulltrúa í síma og útskýrt fyrir honum hvernig málið væri.“ Það reyndist hins vegar ekki raunin. Í ljós kom að bæði Garðar og barnsmóðir hans þyrftu að vera viðstödd á skrifstofu sýslumanns eða fulltrúar þeirra með lögleg umboð. „Ég hringdi út í mína fyrrverandi og sagði henni þetta. Það var í síðasta skipti sem við ræddum saman í síma,“ segir Garðar. Að hans sögn sýndi barnsmóðir hans ekkert frumkvæði í því að hefja sambúðarslitaferlið og að endingu fékk hann lögmann sinn til þess að senda henni erindi á tölvupósti. „Það gekk illa að fá svör frá henni eða lögmanninum hennar. Í millitíðinni voru ég og ættingjar mínir blokkaðir á samskiptamiðlum. Það var í raun skorið á öll samskipti á þessum tímapunkti,“ segir Garðar. Þann 1. apríl komst hann að því fyrir tilviljun að lögheimili hans hafði verið flutt til Spánar nokkrum dögum fyrr. „Ég fór niður í Þjóðskrá til þess að fá staðfestingu á lögheimili og aðsetursskráningu og þá kom í ljós að lögheimili allra fjölskyldumeðlima hafði verið flutt til Spánar þann 23. mars. Andlitið datt gjörsamlega af mér og ég beið bara eftir því að starfsmaðurinn myndi hrópa „1. apríl“. Allt í einu var heimili mitt komið til Spánar þrátt fyrir yfirvofandi sambandsslit. Ég hef síðan reynt að fá þennan gjörning dæmdan ógildan með öllu en stofnunin situr við sinn keip. Þetta hefur verið kært til innanríkisráðuneytisins en það ferli virðist taka afar langan tíma. Á meðan er ég réttindalaus hérlendis enda skráður með lögheimili í öðru landi,“ segir Garðar.

„Þessi háttur hefur verið hafður á í áratugi án athugasemda“

Að sögn Sólveigar Jóh. Guðmundsdóttur, sviðstjóra þjóðskrársviðs þá eru verkferlar Þjóðskrár Íslands um flutning fólks mismunandi eftir því hvort um er að ræða einstaklinga eða hjón og sambúðarfólk. „Tilkynni einstaklingur um nýtt heimilisfang er hann skráður á það húsnæði. Tilkynni hjón eða sambúðarfólk um breytt lögheimili þá eru þau bæði skráð á það húsnæði þó svo að aðeins annað hjóna/sambúðarmaki tilkynni Þjóðskrá Íslands um flutninginn. Þessi háttur hefur verið hafður á í áratugi án athugasemda og koma þessar upplýsingar meðal annars skýrt fram á heimasíðu stofnunarinnar sem og á þar til gerðum flutningseyðublöðum,“ segir Sólveig.

Að sögn Sólveigar þurfa einstaklingar sem ætla að flytja aftur til Íslands að koma á starfsstöð Þjóðskrár Íslands eða til sveitarfélags í eigin persónu. „Við komu til landsins eru einstaklingar skráðir með lögheimili á Íslandi og er sú dagsetning viðmið á hvenær þeir njóta réttinda í íslensku samfélagi. Ekki er því að mögulegt að móttaka slíkar tilkynningar áður en komið er til landsins eða með rafrænum hætti,“ segir Sólveig.

Handtekinn fyrir brot gegn nálgunarbanni

Hann segist hafa reynt að heyra eins mikið í börnunum og hann gat á þessu tímabili. „Ég fékk stundum að ræða við þau í gegnum Facetime en það reyndist alltaf erfiðara og erfiðara. Hún svaraði tölvupósti mínum illa þar sem að ég bað um að fá að heyra í þeim. Ég var farinn að sakna þeirra mjög og því pantaði ég far út til Spánar þann 9. apríl og ákvað að taka móður mína með sem leynigest. Ég tilkynnti börnunum mínum þetta í gegnum Facetime þann 4. apríl og voru þau mjög spennt að heyra að aðeins fimm dagar væru í að þau myndu hitta pabba sinn,“ segir Garðar. Að hans sögn átti dóttir hans erfitt með að halda aftur af gleðitárum þegar hún fékk fréttirnar. Þegar út var komið fór Garðar spenntur að heimili barnsmóður sinnar og barna ásamt móður sinni. „Ég hafði áður ítrekað reynt að ná í hana án árangurs. Þegar við komum þá virtist enginn vera heima. Ég stökk yfir hlið til þess að hringja dyrabjöllunni en fékk ekkert svar. Við gengum síðan niður að klúbbhúsi við nærliggjandi golfvöll til að athuga hvort börnin mín væru þar ásamt móður sinni en þegar við komum til baka að húsinu er lögreglubíll mættur á vettvang,“ segir Garðar. Að hans sögn vildu lögreglumennirnir ólmir sjá vegabréf hans og þegar því var lokið kröfðust þeir þess að hann kæmi niður á lögreglustöð. Tungumálaörðugleikar komu að sögn í veg fyrir að Garðar skildi af hverju þjónar réttvísinnar ætluðust til þess en hann ákvað að hlýða. Hann fékk að keyra á eftir þeim ásamt móður sinni í bílaleigubíl en þegar hann kom á lögreglustöðina var hann umkringdur fimm lögreglumönnum og umsvifalaust handtekinn. „Ég var gjörsamlega forviða. Það eina sem ég fékk upplýsingar um var að það væri vegna ofbeldis og síðan var mér stungið í ógeðslega skítugan einangrunarklefa þar sem var niðamyrkur og ekkert til taks annað en ískaldur steinbekkur,“ segir Garðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 6 dögum

Öskraði upp yfir sig þegar hún sá stöðuna á bankareikningnum

Öskraði upp yfir sig þegar hún sá stöðuna á bankareikningnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sakar fyrrverandi þjálfara um kynferðislega áreitni – „Hún gerði líf mitt að lifandi helvíti“

Sakar fyrrverandi þjálfara um kynferðislega áreitni – „Hún gerði líf mitt að lifandi helvíti“
Fókus
Fyrir 1 viku

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma
Fókus
Fyrir 1 viku

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir
Fókus
Fyrir 1 viku

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu
Fókus
Fyrir 1 viku

Brooklyn Beckham lokar á fjölskylduna og svarar ekki skilaboðum

Brooklyn Beckham lokar á fjölskylduna og svarar ekki skilaboðum