fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fókus

Börn Anítu eru meira og minna veik allan veturinn

Biðlar til foreldra að halda veikum börnum heima

Kristín Clausen
Mánudaginn 15. ágúst 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Af því að þau geta ekki misst einn dag úr vinnu eru börnin mín veik.“ Þetta segir Aníta Estíva, fjölmiðlafræðinemi og ein af eigendum Öskubuska.is í nýjum pistli á vefsvæði Öskubusku.

Aníta á tvö börn sem bæði eru með galla í ónæmiskerfinu sem kallast lækkun á MBL gildum. Af þeim sökum þekkir Aníta ekki eðlilegt fjölskyldulíf á veturna. Börnin hennar geta til dæmis ekki mætt í barnaafmæli, farið í sund eða ævintýragarða án þess að veikjast og hún þarf alltaf að spyrja áður en haldið er í heimsókn hvort það séu eða hafi nýlega verið veikindi á heimilinu og taka ákvörðun byggða á því hvort þau treysti sér í heimsóknina.

„Þetta tekur auðvitað gríðarlega á fjölskyldulífið, það er mjög erfitt að geta ekki farið áhyggjulaus í barnaafmæli eða heimsóknir og að þurfa alltaf að skipta á milli sér veikindum allan veturinn er mjög erfitt líka.“

Í pistli á Öskubusku segir Aníta frá því að hún hafi rekist á innlegg á Facebook þar sem ein móðirin spurði hvort það væri í lagi að senda barnið sitt í leikskólann þrátt fyrir að það hefði verið með 38° hita kvöldið áður. En barnið væri búið að vera hitalaust yfir daginn.

„Flestar mæðurnar ráðlögðu henni að halda barninu heima heilan sólarhring hitalausum. Ein skrifaði að hún ætti HELST að hafa barnið hitalaust í sólarhring. En það er auðvitað kolrangt því samkvæmt reglum dagmæðra/leikskóla/grunnskóla þá er þess krafist að barnið hafi verið hitalaust í minnst heilan sólarhring áður en það mætir aftur til leiks.“

Aníta segist hafa orðið mjög reið þegar hún las þetta. Síðan hafi hún áttað sig á því að foreldrar heilbrigðra barna geri sér einfaldlega ekki grein fyrir stöðunni sem hennar fjölskylda er í.

„Að vera með lækkun á MBL (mannose binding lectin) gildum þýðir það að ónæmiskerfi líkamans er gallað að því leiti að efnið sem vinnur á móti sýkingum er lægra eða jafnvel ekkert í þeim sem hafa þetta. Það þýðir í einföldu máli að börnin mín smitast af ÖLLU sem er í kringum þau, hverri einni og einustu pest,“ segir Aníta og bætir við:

„Þetta gerir það að verkum að við höfum verið meira og minna inni á spítala á veturna og ég og Óttar höfum misst mikið úr vinnu. Börnin okkar hafa innbyrt allt of allt of mikið af lyfjum og eiga eftir að koma til með að þurfa að innbyrða ennþá meira á komandi vetrum.“

Aníta segir ástæðu þess að börnin hennar veikjast meðal annars þá foreldra sem senda börnin sín í leikskólann þegar þau eru búin að vera með hita kvöldið áður.

„Af því að þau geta ekki misst einn dag úr vinnu eru börnin mín veik.“

Aníta bendir á að rétt eins og við fullorðna fólkið mætum ekki veik í vinnuna þá eiga börnin okkar ekki undir neinum kringumstæðum að mæta veik í leikskólann/skólann.

„Mig langar því með þessum skrifum að biðla til allra foreldra; Plís hugsið ykkur tvisvar um áður en þið sendið börnin ykkar með nokkrar kommur eða hita kvöldið áður í leikskólann/skólann. Þið vitið ekki hvort það séu einhver börn á leikskólanum/skólanum sem hafi einhvern svipaðan galla í ónæmiskerfinu og mín börn eða eitthvað annað sem gæti haft verri áhrif á þau heldur en ykkar börn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi
Fókus
Fyrir 6 dögum

Einstakur og fallegur Laufeyjar Múmínbolli fáanlegur

Einstakur og fallegur Laufeyjar Múmínbolli fáanlegur
Fókus
Fyrir 1 viku

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma
Fókus
Fyrir 1 viku

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?
Fókus
Fyrir 1 viku

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu