fbpx
Mánudagur 10.nóvember 2025
Fókus

Munaði hársbreidd að ferðin á EM í Frakklandi lenti í endurvinnslunni

Mamma bjargaði vinningnum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 5. júní 2016 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ferð Önnu Maríu Ómarsdóttur á EM í Frakklandi var hársbreidd frá því að lenda í endurvinnslu en þökk sé móður hennar, Ingveldi Gísladóttur, verða Anna María og kærastinn hennar á leikvanginum í St. Etienne þann 14. júní þegar íslenska landsliðið leikur sinn fyrsta leik á mótinu, gegn liði Portúgals.

Anna María, sem er 25 ára og starfar á leikskólanum Arnarsmára í Kópavogi, vann ferð fyrir tvo á EM í tappaleik Coca-Cola en tvær flöskur af drykknum fylgdu með hamborgaratilboðum sem hún og kærastinn hennar, Bjarki Gunnarsson, keyptu á Bad Boys Burgers and Grill á Vesturlandsvegi í maí. Hún segist ekkert hafa leitt hugann að því að vinningar gætu leynst í tappanum og höfðu tómar flöskurnar legið í bíl hennar í nokkra daga þar til nýlega þegar hún og Bjarki fóru í heimsókn til Ingveldar, móður Önnu Maríu.

Anna María tók flöskurnar tvær með sér inn úr bílnum og henti þeim í poka sem Ingveldur notaði fyrir tómar flöskur og dósir. „Mamma gamla tók flöskurnar upp úr honum og fór í tölvuna og athugaði hvort það væri vinningur í töppunum,“ segir Ingveldur frá. „Þá kom í ljós að það var vinningur í öðrum þeirra og ég hugsaði „ohh dí er hún búin að vinna?“ bætir Ingveldur við og hlær. Því næst gekk hún með tölvuna yfir til Önnu Maríu og Bjarka, sýndi þeim tölvuskjáinn og sagði „sjáið, þið eigið þennan tappa!“ Hún segir þau varla hafa trúað þessu en í kjölfarið hafi tekið við „eintóm gleði!“

Anna María segir að sér hafi brugðið verulega við að sjá vinningsskilaboðin sem mamma hennar sýndi henni á tölvuskjánum. „Við störðum á skjáinn þar sem stóð einfaldlega „Til hamingju, þú hefur unnið ferð á EM.“ Svo vorum við svo hissa að við sögðum eiginlega ekki neitt, þetta var svo óraunverulegt. Ég hef aldrei unnið í svona leik áður. Svo skoðuðum við síðuna aftur og aftur og þá varð þetta mjög raunverulegt.“

Anna María og Bjarki halda til Frakklands mánudaginn 13. júní og koma heim tveimur dögum síðar. Þau höfðu ekki ætlað á EM í Frakklandi líkt og þúsundir annarra Íslendinga en eru gríðarlega ánægð með vinninginn. „Bjarki er mikill fótboltaunnandi og það var draumur hjá honum að fara á EM. Ég viðurkenni að ég er ekki mikill fótboltaaðdáandi en ég varð það við að vinna þessa ferð og við hlökkum mikið til að fara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Segist hafa séð flygildi fyrir ofan hús Þorgríms Þráinssonar

Segist hafa séð flygildi fyrir ofan hús Þorgríms Þráinssonar
Fókus
Í gær

Þetta er síðasta myndin af henni á lífi – Hélt hún væri að fara á stefnumót

Þetta er síðasta myndin af henni á lífi – Hélt hún væri að fara á stefnumót
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gunnar segir að íslensk kona hafi verið numin á brott af geimverum: „Hún er mjög hátt sett bara í sínu starfi og enginn rugludallur“

Gunnar segir að íslensk kona hafi verið numin á brott af geimverum: „Hún er mjög hátt sett bara í sínu starfi og enginn rugludallur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf stjörnunnar orðið að algjöru helvíti í fangelsinu – Trúði því aldrei að hans fyrrverandi gæti verið svona grimm

Líf stjörnunnar orðið að algjöru helvíti í fangelsinu – Trúði því aldrei að hans fyrrverandi gæti verið svona grimm
Fókus
Fyrir 3 dögum

Erla vill seinka klukkunni: „Með breytingunni gætu börn verið í dagsbirtu nánast alla skóladaga“

Erla vill seinka klukkunni: „Með breytingunni gætu börn verið í dagsbirtu nánast alla skóladaga“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Mennska Barbie“ látin aðeins 31 árs

„Mennska Barbie“ látin aðeins 31 árs