fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
Fókus

Vilja að JoJo hitti Springsteen

– Ekstra Bladet vill leiða JoJo og Springsteen saman 28 árum síðar

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 26. júní 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þeir á danska blaðinu spurðu svo hvort ég vilji koma og hitta „Bossinn“ 20. júlí á Jótlandi. Þeir vilja borga allan kostnað til að setja punkt við þessa sögu,“ segir götulistamaðurinn JoJo, um viðtal við hann sem birtist í danska Ekstra Bladet á miðvikudag. Þar er rifjað upp sögufrægt atvik þegar JoJo spilaði með Bruce Springsteen á Strikinu í Kaupmannahöfn árið 1988.

Viðtalið var birt í tilefni tónleika Springsteen í dönsku höfuðborginni sama dag. Voru þá liðin 28 ár síðan JoJo, sem heitir Jón Magnússon, kallaði til bandarísku stórstjörnunnar á Strikinu og bauð honum að spila með sér. Tóku þeir þrjú lög saman eins og sjá má á Youtube en gömul upptaka af götutónleikum þeirra hefur nú fengið tæp 650 þúsund áhorf. Springsteen spilar í Horsens á Jótlandi 20. júlí næstkomandi.

„Ég sagðist vera opinn fyrir því að koma og að ef að hann væri í góðum gír þá væri ég tilbúinn til þess. Danirnir hafa verið duglegir við að rifja þetta upp þegar „Bossinn“ kemur og sjónvarpið sýnt myndir af þessu,“ segir JoJo.

„Ég setti smá húmor í þetta viðtal og benti á að hann hefði gleymt að skila gítarnöglinni minni og að ég myndi sækja hana seinna. Hann er nú líka húmoristi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd
Fókus
Fyrir 5 dögum

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt
Fókus
Fyrir 1 viku

Leikarinn olli reiði er hann birti færslu á óheppilegum tíma – „Hvað í fjandanum?“

Leikarinn olli reiði er hann birti færslu á óheppilegum tíma – „Hvað í fjandanum?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Dóttir Jack Nicholson birtir sjaldséða mynd á 89 ára afmælinu – Svona lítur hann út í dag

Dóttir Jack Nicholson birtir sjaldséða mynd á 89 ára afmælinu – Svona lítur hann út í dag