fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Fókus

Sjöundi leiðangur Hróksins til Grænlands á árinu: Frábær þriggja þorpa hátíð

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Þriðjudaginn 29. nóvember 2016 21:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir vaskir Hróksliðar eru nú nýkomnir úr leiðangri til þriggja þorpa og bæja á Austur-Grænlandi. Slegið var upp Flugfélagshátíð, með dyggum stuðningi fyrirtækja, einstaklinga, heimamanna, grunnskóla á svæðinu, og er óhætt að segja að gleðin hafi verið allsráðandi.

Kulusuk er næsti nágrannabær Íslendinga og þangað hefur Flugfélag Íslands haldið uppi áætlunarferðum um árabil. FÍ hefur verið helsti bakhjarl Hróksins frá því að skáklandnámið hófst á Grænlandi sumarið 2003. Íbúar í Kulusuk eru nú um 250 og eru 40 börn í skólanum, sem öll tóku þátt í hátíðinni. Þorvaldur Ingveldarson kenndi skák, tefldi fjöltefli og sló upp meistaramóti, auk þess að vera með tónsmiðju og heimsækja leikskóla staðarins, klyfjaður gjöfum frá leikfangabúðinni Krumma, prjónahópi Gerðubergs og fleiri velunnurum.

Þrír liðsmenn Hróksins og Kalak héldu til Tasiilaq, sem er höfuðstaður Austur-Grænlands með um 2000 íbúa. Róbert Lagerman, Stefán Herbertsson og Max Fürstenberg kenndu í grunnskóla bæjarins, efndu til fjöltefla og meistaramóts. Þá heimsóttu þeir fangelsið í bænum, dvalarheimili aldraðra, og heimili fyrir börn sem ekki geta dvalið hjá fjölskyldum sínum, og fleiri staði. Frá Tasiilaq lá þremenninganna til Kuummiut, þar sem um 50 börn eru í skólanum. Hvarvetna voru haldin mót og fjöltefli með veglegum vinningum.

Fjölmargir leggja Hróknum og Kalak lið við skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar. Helstu bakhjarlar eru Flugfélag Íslands, Bónus, Krumma, Tiger, Sólarfilma, Íslenskir fjallaleiðsögumenn, HENSON, Ísspor, Nói Síríus og Travel Lodge Greenland. Þá er ótalinn prjónahópurinn í Gerðubergi, sem gerir liðsmenn Hróksins út með mikið af vönduðum og góðum prjónaflíkum fyrir börnin á Grænlandi.

Starfsári Hróksins á Grænlandi er hreint ekki lokið. Verið er að undirbúa frekari fatasendinga til nokkurra þorpa og í desember munu jólasveinar Hróksins færa öllum börnum í Kulusuk vandaðar jólagjafir frá prjónakonunum í Gerðubergi.

Markmið Hróksins með starfinu á Grænlandi er ekki einasta að útbreiða þjóðaríþrótta Íslendinga, heldur fjölga gleðistundum og auk samskipti og vináttu þjóðanna á sem flestum sviðum.

Fyrir neðan má sjá myndasyrpu úr ferðinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Lína Birgitta borðar alltaf það sama í morgunmat – „Ástæðan er mjög einföld“

Lína Birgitta borðar alltaf það sama í morgunmat – „Ástæðan er mjög einföld“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Það sem Brynjar hélt að væru bilaðar lagnir var í raun listaverk í miðbænum

Það sem Brynjar hélt að væru bilaðar lagnir var í raun listaverk í miðbænum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég hef verið kölluð barnaníðingur því kærasta mín lítur út eins og 13 ára drengur“

„Ég hef verið kölluð barnaníðingur því kærasta mín lítur út eins og 13 ára drengur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dramatíska þyngdartapið sem vakti óhug og varð til þess að þjálfari hætti

Dramatíska þyngdartapið sem vakti óhug og varð til þess að þjálfari hætti
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hjálmar Örn játaði 40 ára gamalt bernskubrek – „Síðasti þáttur fyrir sumarfrí kom á DV með rúðurnar og löggumálið“

Hjálmar Örn játaði 40 ára gamalt bernskubrek – „Síðasti þáttur fyrir sumarfrí kom á DV með rúðurnar og löggumálið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svona lítur barnastjarnan út 10 árum eftir að hann sló í gegn

Svona lítur barnastjarnan út 10 árum eftir að hann sló í gegn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Var rukkuð 44 þúsund krónur á hárgreiðslustofunni – „Verðlag á Íslandi er orðið eitthvað illa skakkt“

Var rukkuð 44 þúsund krónur á hárgreiðslustofunni – „Verðlag á Íslandi er orðið eitthvað illa skakkt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Léttist um tæp 60 kíló í Biggest Loser en það átti eftir að kosta hann mikið

Léttist um tæp 60 kíló í Biggest Loser en það átti eftir að kosta hann mikið