fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Konan í myrkrinu í sviðsljósinu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 24. nóvember 2016 19:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á glæpasagnahátíðinni Iceland Noir voru um helgina veitt verðlaun fyrir bestu þýddu glæpasöguna á Íslandi árið 2016, Ísnálin, og hlaut hollenska glæpasagan Konan í myrkrinu eftir Marion Pauw í þýðingu Rögnu Sigurðardóttur verðlaunin.

Þær bækur sem tilnefndar voru til verðlaunanna, auk Konunnar í myrkrinu, voru Hin myrku djúp eftir Ann Cleeves í þýðingu Þórdísar Bachmann, Kólibrímorðin eftir Kati Hiekkapelto í þýðingu Sigurðar Karlssonar, Meira blóð eftir Jo
Nesbø í þýðingu Bjarna Gunnarssonar og Sjöunda barnið eftir Erik Valeur í þýðingu Eiríks Brynjólfssonar.

Konan í myrkrinu fjallar um Írisi og Ray. Íris er ungur lögfræðingur og einstæð móðir sem reynir að fóta sig á framabrautinni samhliða því að sjá um erfiðan son sinn. Ray, sem er ekki eins og fólk er flest, er lokaður inni á stofnun eftir að hafa verið dæmdur fyrir hrottalegt morð á ungri konu og dóttur hennar. Leiðir Írisar og Rays liggja síðan óvænt saman sem verður til þess að af stað fer atburðarás sem gjörbreytir lífi þeirra.

Marion Pauw er drottning hollenskra spennusagna og hlaut hin virtu spennusagnaverðlaun Gullnu snöruna fyrir bókina. Nú þegar hefur verið gerð kvikmynd eftir sögunni sem hlotið hefur fjölda verðlauna og bandarísk stórmynd byggð á bókinni er í burðarliðnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi