fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fókus

Snævar glímdi við alvarlega lesblindu sem barn: „Var sannfærður um að ég væri tossi“

Auður Ösp
Fimmtudaginn 6. október 2016 18:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það eru komnar gríðarlega miklar lausnir. Það er allt önnur vakning. Þegar ég er í skóla er verið að tala um það við mig að ég sé svo latur, það verði ekkert úr mér og ég verði að fara að taka mig á. Þetta er svona skilaboðin,“ segir Snævar Ívarsson framkvæmdastjóri Félags lesblindra þegar hann lýsir því mótlæti sem hann mátti þola í barnaskóla sökum þess að hann var með alvarlega lesblindu. Í þá daga var hugtakið ekki þekkt og þeir sem þjáðust af lesblindu voru yfirleitt stimplaðir sem tossar. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá hvað varðar skilning almennings á lesblindu auk þess sem Snævar segir nútímatækni hafa gjörbreytt aðgengi lesblindra að texta.

Í samtali við Örlögin á Hringbraut segir Snævar að lesblinda hans hafi ekki uppgvötvast fyrr en hann var kominn á fertugsaldur. Hann hafði þá alltaf farið mjög leynt með lestrarörðugleika sína. Hann nefnir sem dæmi að það hafi reynst honum gríðarlega erfitt að fletta upp í símaskránni.

„Þegar ég hugsa til baka þá leið mér ekki illa í skólanum. Ég var rosalega spenntur að byrja í skóla,“ segir Snævar jafnframt þegar talið berst að barnaskólaárunum. Honum tókst að læra stafina og stærðfræðin reyndist honum auðvelt en þegar kom að því að þurfa að fara að lesa heima þá vandaðist málið. Stafirnir vöfðust stórkostlega fyrir honum og svo fór að Snævar féll á barnaskólaprófi.

„Þetta var mjög sárt. Sérstaklega að sjá á eftir öllum félögunum, þeir fóru í menntaskóla eða Iðnskólann. Ég eiginlega verð svolítið eftir.“

Sævar freistaðist þess síðan að taka efsta bekkinn aftur haustið á eftir.

„Auðvitað hugsa ég til að baka að ég hefði átt að leggja meira á mig og reyna að taka betur á því. Þetta var svo mikil niðurlæging að vera komin þarna í bekk með strákum sem voru árum yngri en ég. Ég á bróður sem er ári yngri. Sjálfsvirðingin réði ekki við þetta á sínum tíma,“ segir hann jafnframt en hann nefnir einnig þá vitundarvakningu sem orðið hefur í þjóðfélaginu varðandi lesblinduna. Nú er til að mynda skimað eftir lesblindu hjá börnum á fyrri skólastigum. Þá lýsir hann því hvernig lesblindir geta oft reynst klókir í að finna lausnir.

„Það er það sem við gerum; við finnum leiðir. Við finnum að við erum öðruvísi en við finnum líka leiðirnar út úr því.“

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=I16KdF1zsFk&w=600&h=550]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 6 dögum

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga