Uppselt er á tilraunasýningu Mið-Íslands á sunnudaginn þar sem meðlimir uppistandshópsins ætla að frumflytja nýtt efni.
Ari Eldjárn greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni og sagði allt efnið vera glænýtt, óstöðugt, hrátt og gróft. Það væri jafnvel drullufyndið, lélegt, og allt þar á milli.
„Persónulega finnst mér þetta alltaf mest spennandi sýningin því maður er nánast berskjaldaður á sviðinu og adrenalínið er eftir því,“ sagði Ari.