fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Íslenska auglýsingastofan vann fjögur gull og Grand Prix verðlaun á Euro Effie hátíðinni

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Miðvikudaginn 19. október 2016 18:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska auglýsingastofan hlaut í gærkvöldi fern Euro Effie verðlaun fyrir „Ask Guðmundur“ herferðina, sem er hluti af Inspired by Iceland herferð Íslandsstofu. Íslenska auglýsingastofan var tilnefnd til fjögurra verðlauna og sigraði í öllum flokkum og fékk að auki sérstök Grand Prix dómaraverðlaun.

Það er í fyrsta sinn í sögu Euro Effie verðlaunanna sem slíkt gerist. Herferðin er þegar orðin ein verðlaunaðasta ferðaþjónustuherferð heims, en hún vann Gull Euro Effie árin 2011 og 2013. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Brussel í Belgíu í gærkvöldi.

Ask Guðmundur var tilnefnd og sigraði í fjórum ólíkum flokkum

Best demonstration of integrated effectivenessHerferðir birtar í ólíkum miðlum með sama eða sambærilegum árangri óháð miðli

David Vs GoliathHerferðir sem markaðssetja sig í umhverfi þar sem samkeppni við stór fyrirtæki og vörumerki er mikil

Leisure & EntertainmentHerferðir sem markaðssetja tómstundir, skemmtun, ferðalög og fleira

Small Budget

Herferðir sem hafa sýnt fram á árangur þrátt fyrir tiltölulega lágar framleiðsluupphæðir

Ask Guðmundur, The Human Search Engine, var samfélagsmiðladrifin herferð sem gerði notendum kleift að spyrja ólíka Íslendinga, sem allir bera nafnið Guðmundur eða Guðmunda, um Ísland, hefðir, náttúru og menningu. Hver landshluti tefldi fram sínum eigin Guðmundi sem sá svo um að svara þeim spurningum sem bárust. Áhugafólk um Ísland gat þannig fengið ítarlegar, raunsannar og skemmtilegar upplýsingar frá alvöru fólki. Herferðinni bárust yfir 1000 spurningar frá meira en 50 löndum víðs vegar um heiminn. Yfir 100 þessara spurninga var svarað með sérstökum myndböndum sem dreift var á samfélagsmiðlum og má sjá þau á YouTube-rás Inspired by Iceland. Íslenska auglýsingastofan vann herferðina í nánu samstarfi við The Brooklyn Brothers í London og byggir útfærsla hennar á samstarfi opinberra aðila og íslenskrar ferðaþjónustu og er Íslandsstofa framkvæmdaraðili.

Euro Effie verðlaunin eru ein virtustu auglýsingaverðlaun heimsins og var verið að veita þau í 20. sinn. Dómnefndin var að venju skipuð fagfólki með markaðs- og auglýsingareynslu, en aðilar dómnefndar eru gífurlega reyndir á sínu sviði. Lokaval dómnefndar um fjórar tilnefningar vegna „Ask Guðmundur“ byggði á hugmyndunum og útfærslu, en að langmestu á mælanlegum árangri þeirra herferða sem hljóta tilnefningu. Það er ekki síst þannig sem þessi verðlaun eru aðgreind frá öðrum auglýsingaverðlaunum. Þær kröfur eru gerðar að herferðir hafi birst í að minnsta kosti tveimur Evrópulöndum árið 2015, auk þess sem færa þarf sterk rök fyrir árangri herferðanna svo þær séu teknar til greina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“