fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

Jakob elskaði barnið eins og sitt eigið: „Líkur á faðerni eru 0%“

Er ekki pabbi dóttur sinnar – Hefur engan umgengisrétt

Auður Ösp
Föstudaginn 14. október 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hinn meinta föður skortir það erfðaefni sem berst barninu frá líffræðilegum föður þess. Líkur á faðerni eru 0%“
stóð í bréfi sem Jakobi T. Arnarssyni barst í mars síðastliðnum. Um leið fékk hann grun sinn endanlega staðfestan; hann var ekki líffræðilegur faðir níu mánaða dóttur sinnar. Áfallið var mikið. Í dag á hann ekkert tilkall til barnsins og engan umgengnisrétt. Tengslin hafa þó ekki rofnað.

Jakob tekur skýrt fram að hann leiti ekki eftir vorkunn með frásögn sinni. Hann vill beina athyglinni að því réttindaleysi sem blasir við einstaklingum í hans stöðu, auk þess að vekja upp umræður um rangfeðrun af ásettu ráði, því það sé algengara en marga grunar. Faðerni barns eigi aldrei að ráðast af geðþótta móður.

Hann telur jafnframt mikilvægt að koma hreint fram gagnvart þeim sem standa honum næst. „Ég er búin að fá endalaust af spurningum undanfarna mánuði og vikur og vil helst koma í veg fyrir óþægilegar aðstæður í framtíðinni þegar fólk spyr mig út í litlu stelpuna. Flestallir af mínum nánustu vita þetta núna.“

Stormasamt samband

Jakob kynntist fyrrverandi sambýliskonu sinni og móður litlu stúlkunnar í lok desember 2013 en hann átti þá fyrir fjögurra ára dreng. Þá átti fyrrverandi sambýliskonan einnig ungan son af fyrra sambandi.

Hann lýsir sambandi þeirra þannig að það hafi verið stormasamt og staðið yfir með hléum næsta árið.

„Ég hafði ekki áhuga á alvarlegu sambandi í fyrstu og leit ekki á sambandið sem slíkt. Ég leit svo á að við værum bara að „hittast“. Ég viðurkenni fúslega að ég gerði viss mistök vegna þess að ég hitti annað kvenfólk á þessum tíma, einkum eina konu. Ég var þó hreinskilinn og sagði frá því að fyrra bragði. Það var í mars 2014,“ segir hann en bætir við að sökum þessa hafi orðið alvarlegur trúnaðarbrestur og seinna hafi fyrrverandi sambýliskonan notað játningu hans gegn honum. „Hún vill meina að ég hafi tjáð henni þetta rétt fyrir haustið 2014 og því hafi hún farið að hitta aðra menn,“ segir hann og á þar við einstaklinga sem seinna áttu eftir að koma til greina sem faðir stúlkunnar.

„Mér fannst ekkert annað koma til greina því ég vissi að það væri réttur barnsins að vera rétt feðrað“

Jakob segir að þrátt fyrir ýmsa örðugleika hafi honum og fyrrverandi sambýliskonu hans aldrei tekist að slíta sig almennilega frá hvort öðru. Þau hafi byrjað að draga sig saman að nýju í júlímánuði þetta ár. Hann var þá staðráðinn í að „vinna hana aftur“ eins og hann orðar það og vildi vera með henni í sambandi.

Vildi faðernispróf

Hann segir eiginlegt samband þó ekki hafa ekki byrjað fyrr en í janúar 2015 þegar í ljós kom að von var á barni. Var sambýliskona hans þá komin þrjá mánuði á leið. Í ljós kom að Jakob var ekki sá eini sem kom til greina sem faðir barnsins, heldur komu fleiri til greina. Segir Jakob að um leið og hann hafi áttað sig á aðstæðum hafi hann gert sér grein fyrir að það eina rétta væri að framkvæma faðernispróf þegar barnið kæmi í heiminn. En jafnframt vildi hann framtíð með móðurinni og þau hafi farið að huga að því að skapa sér framtíð saman. Það hafi alltaf verið skýrt í hans huga.

„Mér fannst ekkert annað koma til greina því ég vissi að það væri réttur barnsins að vera rétt feðrað. Jafnvel þótt komið hefði í ljós að barnið væri ekki mitt þá var ég tilbúinn að ganga því í föðurstað.“

Jakob segir fyrrverandi sambýliskonu hans hafa talið honum trú að það væri nánast fullvíst að hann væri faðir hins ófædda barns og talað um að 80 til 90 prósent líkur væru á því. „Hún byggði sína vissu á því að eitt sinn hafði ég sagt að hugsanlega væri einhver möguleiki á því að það hefði orðið slys þegar stúlkan var getin.

Jakob segir fyrrverandi sambýliskonu sína hafa talið honum trú að það væri nánast fullvíst að hann væri faðir barnsins.
Réttur barns að vera rétt feðrað Jakob segir fyrrverandi sambýliskonu sína hafa talið honum trú að það væri nánast fullvíst að hann væri faðir barnsins.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Eftir því sem nær dró stóra deginum finnst mér eins og hún hafi reynt allt sem hún gat til að hindra að það yrði gert faðernispróf á hinu væntanlega barni. Það var eins og hún væri stöðugt að reyna að tefja það. Mér fannst hún sífellt vera að reyna að tala mig af því, nefndi til að mynda að það væri kostnaðarsamt og að það væri óþarfi þar sem ég væri að öllum líkindum faðirinn. Þá var eins og hún vildi ekki „troða“ barninu upp á einhvern annan,“ segir hann.

„Á þessum tíma var ég undir miklu álagi; var í erfiðu námi og þurfti að skila inn alls kyns verkefnum, móðir mín lá inni á líknardeild, langt leidd af krabbameini. Þar að auki stóð ég í flutningum og var að aðlagast nýjum aðstæðum,“ segir hann og bætir við að hann hafi að lokum sannfærst og því hætt að þrýsta á að faðernispróf yrði framkvæmt. „Það var erfitt að einbeita sér að þessu öllu í einu.“

Hann segir það einnig hafa spilað stóran þátt að móðir hans lést tveimur vikum eftir fæðingu stúlkunnar en þau mæðgin voru afar náin. Því tók við langt og mikið sorgarferli sem hafði í för með sér djúpt þunglyndi. Í kjölfarið hafi hann nokkurn veginn ýtt faðernispælingum til hliðar. „Ég gekk bara beint inni í sorgina, og hún yfirtók allt,“ segir hann.

„Ég elskaði hana svo sannarlega eins og mitt eigið barn“

„Þegar ég hugsa um þetta eftir á þá líður mér eins og það hafi verið unnið í því að festa mig í þessum aðstæðum. Kannski vegna þess að ég var ákjósanlegasti kosturinn sem faðir.“

Elskaði hana frá fyrsta degi

Litla stúlkan fæddist í lok júnímánaðar 2015. Hún var skírð í höfuðið á móður Jakobs. Jakob segist á þeim tímapunkti ekki hafa hugsað um faðernismálið. Hann hafi horft á stúlkuna og þóst sjá eitthvað af sér í henni. Á meðan hafi móðir hans fengið að sjá stúlkuna á myndum. Hún kvaðst ekkert sjá af honum í barninu.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hann segir að bæði hann sjálfur og fyrrverandi sambýliskona hans hafi glímt við mikið þunglyndi næstu mánuði, hann vegna fráfalls móðurinnar og hún við fæðingarþunglyndi. Sambandið hafi liðið fyrir það en hann hafi þó alltaf þrjóskast áfram. Þá hafi hann reynt eftir bestu getu að hjálpa til við umönnun stúlkunnar.

„Og ég elskaði hana svo sannarlega eins og mitt eigið barn frá fyrsta degi enda var ég viðstaddur fæðinguna, ég svæfði hana þegar móðir hennar hafði ekki tök á því, ég á fyrsta hláturinn hennar á myndbandsupptöku,“ heldur Jakob áfram. Hann kveðst hafa verið staðráðinn í að byggja upp framtíð með litlu stúlkunni, móðurinni og drengjunum þeirra tveimur. „Undir lokin var hún farin að kalla mig pabba.

Ég held að með tímanum hafi þetta orðið þannig að vegna þess að tengslin á milli mín og hennar urðu svo sterk þá var þetta faðernismál ekki að naga mig í sífellu.“

Þurfti að fara á bak við móðurina

Jakob segir efasemdir sínar um faðerni stúlkunnar þó aldrei hafa horfið. Ég komst að að ýmsu í lok febrúar sem hafði áhrif á gang mála og eitt af því voru efasemdir sjálfrar móðurinnar um að ég væri faðirinn,“ segir hann.

Hann ákvað að taka til sinna ráða og fá skorið úr um sannleikann. Það var í mars á þessu ári.

Hann kveðst hafa neyðst til að fara á bak við móðurina þegar hann lét senda munnvatnssýni úr sér og dótturinni til Danmerkur. „Ég hef rætt þetta við hana og beðið hana fyrirgefningar á að hafa farið á bak við hana,“ segir hann og bætir við að það hafi þó ekki komið annað til greina en að framkvæma prófið án hennar vitundar. „Ég taldi fullvíst að ég myndi ekki fá hennar samþykki.“

Bréfið

Í mars kom svo bréfið. „Auðvitað þorði ég ekki að vera viss um að fá jákvæða niðurstöðu. En áfallið var samt gríðarlegt. Það var á níu mánaða afmælisdeginum hennar sem ég fékk tölvupóst frá Danmörku. Ég var á leiðinni í vinnuna og leit á tölvupóstinn í símanum. Einhverra hluta vegna opnaði ég ekki póstinn heldur dreif mig í vinnuna og ákvað að lesa hann þar,“ segir Jakob. Hjartað tók þónokkur aukaslög áður en hann las innihaldið. Í bréfinu stóð meðal annars:

„Í þessi tilviki er hvorugur af x litningum hennar sambærilegur við x litninga þína. Er því niðurstaðan sú að þú getur ekki verið líffræðilegur faðir hennar.“

„Það tók sinn tíma að rýna í niðurstöðurnar, allar þessar tölur sem komu með, og ná heildarmyndinni,“ segir hann. „En það sem ég gat séð var eitthvað um að það væru of margar breytur í DNA litlu stelpunnar sem væru frábrugðnar mínum.“

„Það var eins og allt það líf sem maður var búinn að vera að byggja upp væri hrunið“

Mikil átök

Þennan sama dag hittist svo á að Jakob átti tíma hjá sálfræðingi. Hann sagði honum allt af létta. Sálfræðingurinn ráðlagði honum að segja móðurinni strax frá niðurstöðunum. Þarna var stutt í páska. „Ég ætlaði að halda þessu leyndu yfir páskana þar sem við ætluðum með foreldrum hennar upp í sumarbústað yfir hátíðina. En svo gat ég það einfaldlega ekki og í bústaðnum sagði ég henni allt sem ég hafði komist að.

„Ég var auðvitað ótrúlega sár og sorgmæddur. Það var eins og allt það líf sem maður var búinn að vera að byggja upp væri hrunið.“

Jakob kveðst ekki hafa séð sér annað fært en að slíta sambandinu til að geta náð áttum. „Ég hafði ekki í nein hús að venda þannig að mér fannst eðlilegt að hún flytti til foreldra sinna. Það endaði hins vegar á því að ég flutti sjálfur út. Hann segir ýmislegt hafa gengið á næstu vikurnar og átökin hafi verið mikil. Viðbrögð móðurinnar hafi í fyrstu verið þau að undrast á reiði hans en því næst að sýna djúpa iðrun. Sú iðrun hafi horfið síðar.

Jakob kveðst hafa hitt litlu stúlkuna í síðasta skipti eitt kvöld í lok apríl. „Þegar hún sá mig teygði hún út hendurnar og sagði „pabba!“
„Það sveið að heyra það,“ segir hann en bætir við að óhjákvæmilega hafi hann litið á hana öðrum augum, vitandi að hann væri ekki blóðtengdur henni. „Það var mjög skrýtið og auðvitað hegðaði ég mér ómeðvitað allt öðruvísi í kringum hana vitandi hvar ég var staddur gagnvart henni líffræðilega séð. Þegar maður ert búinn að vera þátttakandi í lífi barns frá því það fæddist þá er þetta einfaldlega gríðarlega snúin staða. Ég upplifði ákveðna fjarlægð en vildi og reyndi að brúa þessa fjarlægð.“

„Ég held að það sé alltof algengt að foreldrar taki sinn eigin hag fram fyrir hag barnsins“

Gífurlegur söknuður

Niðurstöður danska DNA-prófsins þóttu ekki marktækar fyrir dómi og þurfti því að framkvæma nýtt próf á Landspítalanum. Íslenska lífsýnarannsóknin gaf sömu niðurstöður. Í kjölfarið var ógilding faðernis viðurkennd hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Í niðurstöðu héraðsdóms frá 17. júlí 2016 segir beinum orðum:

„Við samanburð hafi komið í ljós að þau erfðamörk, sem rannsökuð voru og stefnandi hafði tekið að erfðum frá föður, reyndust ekki öll fyrir hendi í erfðaefni stefnda. Samkvæmt niðurstöðu álitsgerðarinnar útilokast stefndi frá því að geta verið faðir stefnanda.“

Jakob er því ekki lengur skráður á pappírum sem faðir stúlkunnar. Hann á ekkert tilkall til hennar þó svo að hún hafi lagalega séð verið dóttir hans fyrstu níu mánuðina. Eina leiðin til að fá að umgangast hana er í gegnum móður hennar.
Jakob á ekki í neinum samskiptum við sína fyrrverandi og treystir sér ekki til þess. Það sama gildir um móðurfjölskyldu stúlkunnar. Það er því ekki auðvelt að nálgast fréttir af henni. En ef til vill er það fyrir bestu.

„Það finna mjög margir til með manni varðandi þetta mál en ég held að fáir geri sér samt virkilega grein fyrir áfallinu sem fylgir þessu öllu.“
Málið hefur reynst Jakobi afar þungbært „Það finna mjög margir til með manni varðandi þetta mál en ég held að fáir geri sér samt virkilega grein fyrir áfallinu sem fylgir þessu öllu.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Mér hefur verið ráðlagt af mínum nánustu að slíta mig frá þessu öllu, sem þýðir þá líka að slíta öll tengsl við stelpuna, því fyrr því betra á meðan hún er svona ung. En það er erfitt að verða ekki hugsað til hennar og ég upplifi gífurlegan söknuð í hvert skipti sem hugurinn leitar þangað. Ég er líka ennþá með myndir af henni á símanum mínum. Það eitt að sjá eða heyra í litlu barni hefur orðið til þess að ég verð að setjast niður og anda djúpt.“

Hann segir líðan sína hafa skánað örlítið frá því í byrjun sumars. Það geti þó verið stutt í kökkinn í hálsinum þegar málið ber á góma.

„Það finna mjög margir til með manni varðandi þetta mál en ég held að fáir geri sér samt virkilega grein fyrir áfallinu sem fylgir þessu öllu. Þetta eru auðvitað mikilvægustu mánuðirnir upp á tengslamyndun, þessir fyrstu mánuðir,“ segir hann og bætir við að hann sakni lítilla hluta, eins og að sitja og svæfa litlu stelpuna.

„Það hefur hjálpað mér mikið að hitta sálfræðing sem ég hef gengið til síðan í byrjun ársins. Ég vinn mig hægt og rólega í gegnum tilfinningarnar. Það er ótrúlega mikilvægt að leita sér hjálpar, enda hefur það opnað augun fyrir ýmsum hlutum sem ég var blindur á á sínum tíma.“

Mikilvægt að feðra barn rétt

Jakob segir ömurlegt þegar móðir „velur sér“ barnsföður eftir hentugleika, með öðrum orðum rangfeðri barn sitt vísvitandi. Þannig verði menn feður án þess að fá nokkurn tímann að vita af því – og sömuleiðis fái börn aldrei að vita um líffræðilegan uppruna sinn. Í sumum tilvikum séu þó ástæður fyrir því að ekki sé barni fyrir bestu að þekkja föður sinn. Og vissulega eru til feður sem eiga hreint ekki að fá að umgangast börnin sín, til að mynda vegna ofbeldishegðunar.

„Fleiri verðandi mæður þurfa að átta sig á að það er betra að feðra barn rétt, heldur en að velja sjálf úr þeim sem koma til greina. Þetta er ákveðið vald sem þær hafa og mér finnst þetta atriði oft gleymast í umræðunni um jafnrétti kynjanna.
Það er eins og það sé enn of mikið feimnismál fyrir kvenfólk þegar fleiri en einn koma til greina sem faðirinn. Verðandi faðir á ekki að þurfa að berjast fyrir því með kjafti og klóm að fá faðernispróf,“ segir hann.

„Ég held bara að það sé alltof algengt að foreldrar taki sinn eigin hag fram fyrir hag barnsins. Ekki bara þegar kemur að faðernismálum heldur einnig forsjármálum og umgegnismálum.“

Faðir í eitt ár

Hann kveðst þrátt fyrir allt ekki vera reiður út í fyrrverandi sambýliskonu sína.

„Ég geri mér fyllilega grein fyrir að við áttum bæði mjög erfitt. En það hvernig mál þróuðust olli því hvernig við tókumst á við þessa erfiðleika og við gerðum bæði mistök í því tilliti.

Ég get kannski bara þakkað fyrir að þetta hafi komið í ljós snemma. Ég frétti til dæmis af einu máli þar sem þetta kom ekki í ljós fyrr en barnið var orðið 16 ára. Ég fékk allavega að vera faðir yndislegrar, lítillar stelpu í næstum eitt ár,“ segir hann því næst um leið og hann uppljóstrar hvernig hann hélt þrátt fyrir allt upp á afmæli litlu stúlkunnar í júní síðastliðnum – á sinn eigin hátt.

„Daginn sem hún fæddist vorum við fyrst send heim af spítalanum, konan var með hríðir, og okkur sagt að koma aftur seinna um daginn. Það var glampandi sól og við fórum og fengum okkur ís í ísbúðinni Valdísi. Þannig að daginn sem hún varð eins árs fór ég þangað og fékk mér ís. Það var mín leið til að halda upp á daginn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 1 viku

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður
Fókus
Fyrir 1 viku

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“