fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

Anna Björk vill vara fólk við: Hann kallaði að ég þyrfti að vakna, 3 litlar stúlkur þyrftu mömmu sína til baka

„Óhugnanlegt að vakna til veruleika þar sem allt er breytt“

Kristín Clausen
Þriðjudaginn 11. október 2016 16:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í dag á ég 15 ára afmæli. Nei, ég er ekki komin með elliglöp. Þennan dag fyrir 15 árum klukkan 11:00 endurfæddist ég á Borgarspítalanum.“

Á þessum orðum hefst pistill eftir Önnu Björk Eðvaldsdóttur sem birtist í gær. Anna fékk bráða heilahimnubólgu haustið 2001 sem nærri kostaði hana lífið. Í erfiðri endurhæfingu þurfti hún að læra allt upp á nýtt. Það sem hún lærði líka, og hefur umbreytt sýn hennar á lífið, er að lífið er viðkvæmt og hverfult. Því eigum við njóta hversdagsins, vera þakklát og stökkva á tækifærin þegar þau gefast.

10. október 2001

Í pistlinum segist Anna hafa heyrt mann kalla á sig úr fjarska með mjög ákveðinni röddu að hún þyrfti að vakna. Þrjár litlar stúlkur biðu eftir því að fá móður sína til baka.

„Ég opnaði augun og sá eins og í rörsýn ókunnugan mann standa við fótagaflinn á rúminu sem ég lá í. Ég sá að þetta var læknir og hann átti röddina sem var að tala svona ákveðið við mig. Smátt og smátt á næstu dögum fór mynd af því, hversvegna ég var á gjörgæslunni, að púslast saman.“

Líkt og áður segir hafði Anna fengið bráða heilahimnubólgu og var með punktablæðingar um allan líkamann. Öll lífsmörk voru að fjara út, flest líffærin hætt að starfa og súrefnismettunin komin niður í 85 prósent.

Þá var búið að undirbúa eiginmann Önnu Bjarkar, Guðjón Magnússon, undir það að hún myndi ekki hafa það af.

Þegar loksins uppgötvast hvaða sjúkdóm Anna Björk var með var heimili hennar sett í sóttkví í sólarhring og öllum á heimilinu gefin sýklalyf.

„Það skelfilega í þessu er, að Guðjón var líka með sama sjúkdóm, en ekki punktablæðingar. Vinstri fóturinn á honum var svo bólginn, að hann var eins og bryggjustólpi. Það var ekki fyrr en á þriðja degi, þegar hann sat yfir mér, að læknarnir fóru að spá í hvað var að hjá honum. Hann var sendur niður á bráðamóttöku þar sem kom í ljós að, hann var líka með heilahimnubólgu.“

Eiginmaðurinn veiktist líka

Anna segir að eignmaður hennar hafi í fyrstu neitað að láta leggja sig inn þar sem hann vildi ekki leggja það á dætur þeirra. En lét segjast þegar honum var tjáð að annars myndi hann líklega missa fótinn.

„Hann var lagður inn í 12 daga á massífum lyfjakúr í æð og fór á milli hæða í hjólastól til að sitja yfir mér eins og hann gat. Fjölskyldan var okkur stoð og stytta í öllum þessum hremmingum. Það er ómetanlegt að eiga góða að.“

Anna segir að á meðan hann sjálfur var mjög veikur barðist hann fyrir rétti sínum og var öflugur málsvari hennar við lækna og hjúkrunarfólk.

„Því þó svo við eigum góða og færa lækna og hjúkrunarfólk, þarf sá veiki að hafa einhvern sem talar hans máli og passar uppá að allt hugsanlegt sé gert. Á það reyndi hjá svo sannarlega hjá mér. Hann þurfti að beita sér verulega fyrir mína hönd, án hans væri ég sjálfsagt ekki hér í dag,“ segir Anna og bætir við.

Þetta eru einkenni bráða heilahimnubólgu

Dæmigerð einkenni bráðrar heilahimnubólgu eru hiti, hnakkastífleiki og skert meðvitund. Aðeins um helmingur sjúklinga hefur öll þessi einkenni en nánast allir hafa að minnsta kosti eitt þeirra. Önnur einkenni eru ógleði, ljós- og hljóðfælni, uppköst, óráð, meðvitundarleysi og óróleiki. Auk þess eru ýmis sértæk teikn sem koma fram síðar í ferlinu.

„Engu að síður reyndust þeir sem komu að bata mínum alveg frábærlega, yndislegt fólk sem var flest nærgætið og hvetjandi, frábært fólk sem á allan heiður skilið og þakklæti. Ég trúi líka á mátt bænarinnar og er sannfærð um að allir bænahóparnir sem báðu fyrir mér og okkur fjölskyldunni, gerðu ómetanlegt gagn til að koma okkur í gegnum þessa erfiðu tíma.“

Anna segir í pistlinum að það sé óhugnanlegt að vakna til veruleika þar sem allt sem þú þekktir og gekkst að sem vísu er breytt. Ekkert er eins og það var.

„Ég man að ég hugsaði um það þegar ég lá ósjálfbjarga í rúminu á gjörgæslunni, tengd við ótal pípandi tæki og með slöngur þræddar í mig, sem dældu lyfjum og vökva, hvað það væri gaman að geta burstað tennurnar sjálf, eða gert hversdagslega hluti eins og að ryksuga.“

Horfðist í augu við dauðann

Ærið verkefni beið Önnu sem þurfti að læra allt upp á nýtt. Þar með talið að ganga, standa í lappirnar og gera allt það hversdagslega sem maður er ekkert spenntur fyrir eða hugsar yfirhöfuð út í þegar allt er í standi.

„En ég hét því að vanvirða ekki lífgjöfina og „heppnina“ að vera ekki stór sködduð eftir veikindin, eins og svo margir eru, eða komast ekki lifandi frá og gefa allt sem ég átti í að komast sem fyrst á fætur og síðan að lifa lífinu LIFANDI. Því ósjálfrátt þegar þú hefur horfst í augu við dauðann og hversu hverfult lífið er breytist viðhorf þitt.“

Anna bendir á að ekkert í lífinu er sjálfsagt og allt sem þú telur „venjulegt“ getur horfið á augabragði.

Mynd: Vísindavefurinn

„Ég lærði að elska einfaldleikann í lífinu og hversdaginn, þegar ekkert er um að vera annað en daglegt amstur, það veitir mér ótrúlega mikla hamingju, gleði og traust. Hvunndags mánudagar eru hamingjudagar hjá mér, allt umfram það er eins og ilmandi krydd í lífið, aukabónus.“

Í framhaldinu tók við bataferli sem reyndi mikið á Önnu.

„Ég gleymi því aldrei þegar ég var bundin föst á bretti í fyrsta sinn til að hjálpa mér við að setjast upp í fyrsta sinn, það var hræðilegt, mig flökraði svo og svimaði. Það þurfti að græða upp sárin sem húðblæðingarnar skildu eftir, mörg djúp og ljót og svo kom í ljós að heyrnin á öðru eyranu var skert og liðirnir ekki eins og þeir áttu að vera. Svimi, einbeitingarskortur, máttleysi og hræðsla við það hvort ég treysti mér aftur út í lífið, sem eitthvað sem ég varð að gera í til að laga.“

Endurhæfingin reyndi á

Eftir mánaðarlegu á sjúkrahúsi, tók við endurhæfing á Grensásdeild Landspítalans. Í framhaldinu fór Anna aftur heim en hún segir að það hafi tekið stöðuga vinnu í 2 ár, að verða aftur eins og hún var áður en hún veiktist.

„Allt hafði þetta djúpstæð áhrif á dætur okkar. Það er ekki lítið áfall fyrir barnssálina að standa frammi fyrir því að hugsanlega getir þú misst foreldra þína í einni svipan. En við höfum verið lánssöm að geta unnið okkur í gegnum þetta allt, saman.“

Niðurstaða Önnu, eftir þessa reynslu, er sú að oft koma bestu gjafirnar í ljótum umbúðum.

„Það á við um mig. Ég tók við lífgjöfinni með báðum höndum og hef lifað betur, upplifað meira, hugsað betur um mig og mína, en ég gerði áður. Ég hef meiri trú á eigin getu og nýt einföldu stundanna í lífinu sem eru fullar af kyrrð og sátt. Að lifa ekki í eftirsjá yfir glötuðum tækifærum, heldur nýta þau og njóta, þegar þau gefast.“

Lífið er viðkvæmt

Önnu langar með frásögninni að minna fólk á hversu viðkvæmt lífið er og hvað allt getur breyst á svipstundu.

„Verum vakandi yfir okkar nánustu þegar þeir eru veikir, það skiptir svo miklu máli. Að vera vel upplýstur um þennan hræðilega sjúkdóm, sem getur komið eins og þruma úr heiðskýru lofti. Þannig gerðist þetta hjá okkur, við vorum ekki með flensu eða veik á nokkurn hátt. Við höfðum farið saman í hádegisverð daginn áður en Guðjón veiktist og þann dag, var ég að gera haustkrans á útihurðina hjá mér með vinkonu minni, alveg grunlaus.

Mynd: Úr einkasafni

Anna ber örin, eftir þennan illvíga sjúkdóm, með stolti. Hún segir þau daglega áminningu um að ekkert er gefið. Við eigum bara daginn í dag svo það er um að gera að njóta.

„Ég hvet þig til að kynna þér einkenni bráða heilahimnubólgu, hún drepur eða skaðar óbætanlega á nokkrum klukkustundum, ef ekkert er að gert strax.

Því miður er hún miklu algengari en víð gerum okkur nokkra grein fyrir, sérstaklega á Íslandi. Talið er að 20 prósent Íslendinga séu með bakteríuna óvirka í munni og hálsi, en hún verður ekki hættuleg fyrr en hún kemst í blóðrásina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 1 viku

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður
Fókus
Fyrir 1 viku

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“