fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fókus

Helgi Hjörvar rifjar upp óhugnalegt atvik

Slasaðist lífshættulega á leiðinni í bió

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 7. september 2016 10:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Starfsfólk spítalans hefur bjargað lífi mínu eins og margra annarra.“ Þetta segir Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, en hann lenti í alvarlegu slysi þegar hann var 17 ára gamall. Hann slasaðist svo illa að fjölskyldu hans var tilkynnt að hann væri í bráðri lífshættu og ef hann myndi lifa myndi hann líklega verða lamaður.

Á leiðinni í bíó

Slysið varð þegar Helgi og nokkrir félagar hans voru á leiðinni í bíó á myndina The Cotton Club Bíóhöllinni í Álfabakka.

„Af einhverjum ástæðum vorum við allt of snemma á ferðinni og þurftum að finna okkur eitthvað til dundurs þar til sýningin hæfist. Grín og galsi endaði með því að við strákarnir vorum á leið frá bíóinu akandi, félagar mínir inni í bílnum en ég uppi á húddinu.“ Frá þessu greinir Helgi á Facebook.

Í ærslagangi félaganna var ekið út á Breiðholtsbrautina. Helgi hékk á framrúðunni með aðra bíla þjótandi fram úr á báðar hendur.

„Þar var mér hætt að þykja þetta alveg jafn fyndið en einbeitti mér að því að halda jafnvægi upp við framrúðuna. Eftir ótrúlega langar sekúndur þarna úti á hraðbrautinni beygðu félagarnir inn í Breiðholtið aftur, mér til mikils léttis, óku að bíóinu á ný og ég hélt ég væri sloppinn. Þá fyrst áttuðu þeir sig á því hvílíkt hættuspil þetta var og ökumaðurinn klossbremsaði.“

Þeytti kerlingar á malbikinu

Helgi útskýrir að þegar bíll snarhemlar á 30 til 40 kílómetra hraða með manneskju á húddinu þá leiðir þyngdarlögmálið til þess að hún flýgur fram fyrir bílinn og fleytir kerlingar á malbikinu.

„Þá vildi ekki betur til en svo að fótur bílstjórans rann af bremsunni og skorðaðist einhvern veginn, bíllinn ók áfram á mig og yfir mig,“ segir Helgi og bætir við.

„Í næsta vetfangi hafði hægra framdekkið rifið með sér talsvert af hári og holdi á leið sinni framhjá höfðinu, önnur höndin var snúin upp um öxulinn hjá dekkinu en fæturnir voru krosslagðir undir púströrinu á bílnum og ég fann ótrúlegan sársauka í lærunum.

Félagi Helga stökk í framhaldinu út um farþegadyrnar og Helgi hrópaði á hann að ná bílnum ofan af sér. „Hans besta hugmynd var þá sú að æpa á bílstjórann: „Gefðu í! Gefðu í!“ Hávær mótmæli mín náðu ekki eyrum bílstjórans svo hann gaf rösklega í.“

Af hendingu hafði bíllinn hrokkið úr gír svo það eina sem gerðist var að vélin hélt áfram að hitna og púströrið sem var að brenna lærin á Helga hitnaði enn meira.

„Mér til lífs varð trúlega stór og sterkur maður sem kom hlaupandi úr nálægum jeppa, lyfti bílnum upp með grettistaki og ýtti honum ofan af mér með hjálp félaga minna.“

Alvarleg meiðsli

Helgi segir í þessu samhengi að viðbrögð fólks við áfalli geti oft verið bæði skrýtin og skemmtileg. Þannig snerust fyrstu áhyggjur eins félaga hans þarna á slysavettvangi um það hvort þeir myndu missa af bíóferðinni.

„Þar sem það var nokkuð ljóst notaði hann tímann meðan beðið var eftir sjúkrabíl til að safna saman bíómiðunum til að fá þá endurgreidda. Alltaf praktískt að lágmarka skaðann.“

Helgi rifjar það sömuleiðis upp að félagar hans hafi pælt í því hvort þeir ættu að skutla honum upp í bílinn og á spítalann.

„Sem hefði orðið minn bani því mig mátti ekki hreyfa. Sem betur fer hafði bjargvætturinn, jeppamaðurinn, þá þegar kallað á sjúkrabíl. Sjálfur hugsaði ég svo mest um reiðjakkann hans afa en ekki heilsu mína þegar verið var að klippa hann og önnur föt af mér á skurðstofunni fyrir aðgerð.“

Örin áminning um lífsreynsluna

Ásamt ýmsum ytri meiðslum hafði stórt stykki brotnað úr öðru viðbeininu, fallið á milli lungnanna og stöðvast við slagæðina. Nánasta fjölskylda Helga fékk skilaboð um að hann væri í bráðri lífshættu og myndi trúlega allavega lamast.

„En Brynjólfur Mogensen læknir og samstarfsfólk hans náði með einhverjum ótrúlegum hætti að veiða upp viðbeinsbútinn og búa svo um að það hefur gagnast mér síðan. Örin eru mér svo dagleg áminning um þessa lífsreynslu.“

Helgi segir að þeir félagar séu enn vinir og hafi vonandi eitthvað lært af slysinu. „Öll eigum við sögu sjálf eða einhver okkur náinn stendur í ævilangri þakkarskuld við hið hæfa og góða starfsfólk spítalans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 1 viku

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir
Fókus
Fyrir 1 viku

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“