fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Hafþór Júlíus við paparazzi ljósmyndara: „Sé ykkur seinna“

Auður Ösp
Mánudaginn 13. júní 2016 10:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn sterkasti maður jarðarinnar, Hafþór Júlíus Björnsson er um þessar mundir staddur í Los Angeles ásamt kærustu sinni, Andreu Sif Jónsdóttur. Líkt og kunnugt er hefur Hafþór öðlast heimsfrægð sem „Fjallið“ í hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum Game of Thrones. Hefur parið því þurft að þola töluvert áreiti paparazzi ljósmyndara.

Breska Daily Mail gerir sér fréttamat úr þessu og greinir frá því að kraftajötuninn hafi „yfirgnæft kærustu sína“ þar sem þau voru í verslunarferð í borg englanna á dögunum. Skartaði Hafþór Júlíusstuttermabol með ansi hreint áhugaverðri áletrun, og tekið er sérstaklega fram að hann innbyrði sex til átta máltíðir á dag til að halda sér í formi. Þá kemur einnig fram að „hin dökkhærða fegurðardís“ hafi klæðst aðsniðnum grænum kjól og skartað sólgleraugum.

Mynd/Skjáskot af Twittersíðu Daily Mail
Mynd/Skjáskot af Twittersíðu Daily Mail

„Við erum bara að versla. Sé ykkur seinna,“ á Hafþór Júlíus að hafa sagt við ágenga ljósmyndara. Þá birtir vefurinn einnig meðfylgjandi myndband þar sem sjá má parið á röltinu í Beverly Hills.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=HoJ8st7m924&w=600&h=392]

Í samtali við Reddit AMA árið 2014 sagði Hafþór Júlíus meðal annars að þó svo að hann sé gífurlega sterkur þá hafi konurnar í lífi hans aldrei haft neitt á móti því að sjá hans „mjúku“ hlið. Hann mun halda áfram að birtast á skjánum í sjöttu þáttaröð Game of Thrones.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi