fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fókus

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið

Fókus
Föstudaginn 6. mars 2026 17:28

Dóra Jóhannsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dóra Jóhannsdóttir handrithöfundur, leikstjóri og leikkona greinir frá því að sjónvarpsþáttaröðin Húsó sé aftur orðin aðgengileg í spilara RÚV og nú hafi hennar nafni verið bætt við listann yfir höfunda þáttanna eftir þriggja ára baráttu hennar fyrir því að fá þá viðurkenningu. Nafn Dóru hafði fram að því hvergi komið fram á þessum lista og það var ekki almennt vitað að hún væri ein af höfundunum fyrr en hún fór sjálf að berjast fyrir því að nafni hennar yrði bætt við. Þættinir fengu verðlaun fyrir besta handritið á Íslensku sjónvarpsverðlaununum og Dóra var meðal þeirra sem tóku við þeim þótt hennar væri hvergi getið á listanum yfir höfunda. Dóra segir hins vegar að þótt þessum áfanga hafi verið náð sé málinu hvergi nærri lokið.

Framleiðslufyrirtækið Glassriver stóð á bak við gerð þáttanna sem sýndir voru á RÚV en Dóra hefur greint frá því að þættirnir séu byggðir að hluta á hennar eigin persónulegu reynslu. Hún fór í sjúkraleyfi áður en tökur hófust en þeim var síðan flýtt og hennar nafn kom aldrei fram á listanum yfir höfunda. Hefur Dóra síðan þá ítrekað krafist þess að Glassriver uppfærði listann og bætti hennar nafni við.

Nafnið

Í janúar síðastliðnum var greint frá því að Húsó hefði verið tekið úr birtingu á vef RÚV og að þættirnir yrðu ekki gerðir aðgengilegir þar aftur nema að listinn frá Glassriver yfir höfunda þeirra yrði uppfærður.

Dóra greinir frá því í nýjum Facebook-pistli að þetta hafi nú verið gert:

„Í byrjun febrúar var Húsó sett aftur á RÚV með uppfærðum kreditlista. Þar fékk ég í fyrsta sinn credit sem „created by“, „story by“, „written by“ og „executive producer“.

Hún segir að í kjölfarið hafi norræni kvikmyndasjóðurinn Nordisk Film & TV Fond uppfært sínar síður og bætt við hennar nafni og dulnefni sem tilnefndum höfundi til Nordisk Series Script Awards, sem voru afhent fyrir ári síðan.

Dóra segir að þessar uppfærslur hafi verið gerðar án dómsúrskurðar eða sáttarsamnings:

„Eftir þriggja ára þungbært ferli þar sem ég hef staðið vörð um lögbundinn höfundarrétt minn. Þetta er mikilvægt skref, þótt núverandi kreditlisti endurspegli enn ekki framlag mitt að fullu.“

Ekki búið

Málinu er þó ekki lokið að sögn Dóru. Höfundalistinn hafi ekki verið uppfærður á öllum miðlum. Formleg krafa um greiðslur og bætur hafi verið send til framleiðandans, Glassriver. Frestur til viðbragða sé nú liðinn og svar hafi ekki borist.

Dóra rifjar upp að fyrir skömmu eignaðist banki, nánar til tekið Arion banki, Glassriver að hluta en það var liður í fjárhagslegri endurskipulagning fyrirtækisins en fjárhagur þess var farinn að þrengjast.

Á sama tíma hafi hún enn hvorki fengið greitt fyrir sína vinnu og framlag til Húsó né bætur fyrir þann skaða sem málið hafi haft í för með sér. Sú staði veki eðlilega spurningar um hvernig tryggt sé að höfundar fái greitt þegar verkefni sem hljóti opinbert fjármagn séu framleidd.

Lögfræðikostnaður sem hefur fallið á Dóru vegna málsins nálgast nú þrjár milljónir króna. Hún segir að  næstu skref séu nú til skoðunar en segir að lokum að hún vilji helst beina orku sinni að nýjum skapandi verkefnum og uppbyggilegu samstarfi á komandi misserum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þetta verður fyrsti viðburður Þjóðaróperunnar

Þetta verður fyrsti viðburður Þjóðaróperunnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Íslandsvinur höfðar mál gegn bæ í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannorðinu

Íslandsvinur höfðar mál gegn bæ í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannorðinu
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta“

„Ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta“