fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Uppselt á afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar – Aukatónleikar degi síðar

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. mars 2026 09:52

Stefán Hilmarsson. Mynd: Jakob Jóhannsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsala á afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar fór fram úr björtustu vonum og seldist nánast upp áður en almenn miðasala átti að hefjast, en áhangendum Stefáns bauðst að skrá sig á forsölulista fyrir nokkrum dögum í gegnum Facebook-síðu hans.

„Ég er innilega þakklátur fyrir viðtökurnar, sem eru sannarlega framar mínum vonum“, sagði Stefán á Facebook-síðu sinni þegar hann greindi frá aukatónleikum í gærkvöldi.

„Það er ekki á vísan að róa með svona lagað, því samkeppni um tíma og athygli fólks í dag er meiri en nokkru sinni. Það yljar mér um hjartarætur að finna að svo margir sýni þessu áhuga. Innan skamms hefst skipulagið fyrir alvöru. Ég skynja að væntingar fólks eru miklar og ég mun reyna að standa undir þeim“.

Skipuleggjendur funduðu í kjölfarið og ákveðið hefur verið að setja á aukatónleika daginn eftir, laugardaginn 27. júní.    Ekki verður sérstök forsala á aukatónleikana, heldur verður opnað fyrir miðasölu í dag kl. 10, á sama tíma og almenn miðasla á fyrri tónleikana átti að hefjast.

Tónleikarnir fara því fram föstudaginn 26. júní og laugardaginn 27. júní og hefjast bæði kvöld kl. 20.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Svali fann ástina í örmum Birnu

Svali fann ástina í örmum Birnu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 1 viku

Gerðu plötu á einni helgi

Gerðu plötu á einni helgi
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“