fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fókus

Fallegasta stúlka í heimi er trúlofuð

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. mars 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thylane Blondeau vakti fyrst athygli um allan heim árið 2006 þegar hún sat fyrir á forsíðu Vogue Enfants, tímarits sem einbeitti sér sérstaklega að barnatísku. Blondeau sem þá var aðeins fimm ára fékk í kjölfarið viðurnefnið fallegasta stúlka heimsins á árlegum lista TC Candler yfir 100 fallegustu andlit ársins.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Thylane-Lena rose (@thylaneblondeau)

Blondeau, er nú orðin 24 ára, og um helgina deildi hún mynd af sér og unnustanum, franska leikaranum, Benjamin Attal. Þau hafa verið saman síðan árið 2022.

„Ég sagði já við besta vin minn. Blessun fyrir alla tíð“. Myndir sýndu augnablikið þegar Attal bað hennar á fallegum stað með útsýni yfir vatnið. Hundur parsins var með þeim á þessari rómantísku stund.

Í fyrra sótti Blondeau Miu Miu-sýninguna á Parísartískuvikunni í október 2025.  Um svipað leyti deildi hún skjáskotum fylgjenda sinna á Instagram þar sem hún var spurð hvað hún hefði „gert við varirnar sínar“ og játaði hún að hún væri þreytt á þessum spurningum.

„Ég veit að margir hafa tilhneigingu til að láta laga útlit sitt mjög snemma, en ég hef aldrei látið gera neitt,“ skrifaði hún á Instagram. „Þú getur skoðað myndir af mér þegar ég var yngri, ekkert hefur breyst. Fólk elskar að bera saman og búa til hluti en bara vegna þess að ég farða mig eða nota varalit þýðir það ekki að ég hafi látið laga varirnar eða andlitið. Á einhverjum tímapunkti þurfum við að hætta þessu aðkasti vegna útlits fólks.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans
Fókus
Fyrir 6 dögum

Kynlífsstellingin sem konur virðast hata en karlar elska

Kynlífsstellingin sem konur virðast hata en karlar elska
Fókus
Fyrir 6 dögum

Eva Laufey segir fermingarbörn kaupa sterk krem og sýrur – „Við höfum smá áhyggjur af þessu“

Eva Laufey segir fermingarbörn kaupa sterk krem og sýrur – „Við höfum smá áhyggjur af þessu“