fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Simmi Vill byrjaður í nýrri vinnu

Fókus
Föstudaginn 6. mars 2026 20:09

Sigmar Vilhjálmsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðla- og athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson er byrjaður í nýrri vinnu en fram kemur í færslu hans á samfélagsmiðlum að hann hafi hafið störf hjá fjölmiðlafyrirtækinu Sýn.

Sigmar hefur komið víða við á ferlinum. Hann hefur meðal annars haft umsjón með sjónvarps- og útvarpsþáttum og komið að rekstri ýmissa fyrirtækja, til að mynda var hann annar eigenda Hamborgarafabrikkunnar.

Í færslu Sigmars má sjá glöggt tölvuskjá með merki Sýnar og undir stendur skrifað:

„Dagur 5 á nýjum stað. Kominn aftur heim.“

Mynd: Skjáskot.

Þar á Sigmar við að hann hefur áður starfað hjá forverum Sýnar til að mynda í bæði útvarpi og sjónvarpi.

Samkvæmt heimildum DV mun Sigmar þó ekki koma að dagskrárgerð hjá Sýn heldur var hann ráðinn sem sölustjóri auglýsinga. DV hefur sent Sigmari skilaboð til að fá það staðfest og mun greina frá staðfestingunni þegar og ef hún berst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa
Fókus
Fyrir 6 dögum

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix