fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Írakar biðja FIFA um hjálp – Vandræði með ferðalög vegna stríðsins

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. mars 2026 21:00

Gianni Infantino, forseti FIFA / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stríðið milli Írans og nágrannaríkja hefur haft áhrif á undirbúning írakska landsliðsins fyrir umspil um sæti á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu.

Írakska knattspyrnusambandið greindi frá því að erfiðleikar við ferðalög og vegabréfsáritanir gætu sett þátttöku liðsins í hættu. Lofthelgi hefur verið lokuð á svæðinu og því getur landsliðsþjálfarinn Graham Arnold ekki yfirgefið Sameinuðu arabísku furstadæmin.

Auk þess eru nokkur sendiráð lokuð um þessar mundir, sem hefur gert leikmönnum og starfsfólki liðsins erfitt fyrir að fá vegabréfsáritun til Mexíkó þar sem umspilsleikurinn fer fram.

Mexíkóska utanríkisráðuneytið sagði að vandamálið stafaði meðal annars af því að Mexíkó er ekki með sendiráð í Írak. Hins vegar hafi sendiráð landsins í Sameinuðu arabísku furstadæmunum haft samband við írakska knattspyrnusambandið.

Mexíkósk stjórnvöld segja að hægt verði að gefa út vegabréfsáritanir í Evrópu ef þess þarf.

Írak á að mæta annað hvort Bólivíu eða Súrínam í Monterrey í Mexíkó 31. mars í leik sem gæti tryggt liðinu eitt af síðustu sætunum á Heimsmeistaramótinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum
Fundarhöld um helgina
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Uppnám í Hollandi vegna lagadeilu – Gæti þurft að spila 133 leiki aftur

Uppnám í Hollandi vegna lagadeilu – Gæti þurft að spila 133 leiki aftur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Fær þungt fann fyrir að berja andstæðing í miðjum leik á Spáni – Sjáðu atvikið

Fær þungt fann fyrir að berja andstæðing í miðjum leik á Spáni – Sjáðu atvikið
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“