fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Fókus
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 07:30

Eyja Margrét. Mynd: Facebook/Háskóli Íslands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyja Margrét Brynjarsdóttir, prófessor í heimspeki við HÍ, segir umræðuna um slaufun og slaufunarmenningu oft byggða á ýktum viðbrögðum við gagnrýni á meinta gerendur.  Viðbrögðum sem Eyja Margrét setur í samhengi við siðfár í nýjustu þáttaseríu hlaðvarpsins Karlmennskan: 

„Það er einmitt svona nokkuð sem að ég hef verið að velta fyrir mér, hvort tal um slaufunarmenningu sé siðfár, þar sem verið er að halda því fram að þessar baráttuhreyfingar séu bara að setja allt úr skorðum í samfélaginu og eyðileggja allt.“

Hún telur að það ríki tæplega slaufunarmenning.

„Það er ekkert eins og það sé einhver slaufunarnefnd eða slaufunarlögregla eða slaufunardómstóll sem tekur ákvarðanir, þetta gerist ekki þannig […] Ég myndi segja að þegar haldið er fram að það sé einhver slaufunarmenning sem sé bara kúgandi og skemmandi fyrir í samfélaginu þá sé það einfaldlega ekki rétt.“

Óraunhæfar kröfur á baráttufólk

Eyja ávarpar þversagnir í orðræðu um slaufun þar sem hún segir þá sem kvarta helst undan slaufunum sé sama fólk og dæmi ófullkomleika baráttufólks hvað harðast:

„Það er eins og það sé ætlast til þess að til að geta gagnrýnt eitthvað í samfélaginu verðir þú að vera 100% fullkomin, og að ósamkvæmni sé bara versti glæpur sem hægt er að hugsa sér, miklu verri en nokkuð annað sem einhver hefur gert.“

Sumum var frestað

Þegar talað er um slaufun þá, segir Eyja Margrét, þurfi að hafa skilgreiningu á hugtakinu á tæru.

„Stundum er tónleikum ekki aflýst eða slaufað heldur er þeim frestað, stundum um óákveðinn tíma og kannski er það bara það sem gerist.“

Þannig telur Eyja Margrét að þótt einhverjir hafi misst vinsældir eða stöðu sína um tíma sýnist henni flestir komnir til baka.

„Mér hefur sýnst að þeim takist yfirleitt að koma fljótt aftur og þeir séu fljótlega komnir í svona fyrri eða svipaða stöðu, þó að þeir búi við mótlæti um tíma.“

Hægt er að horfa á þáttinn á karlmennskan.is og í hlaðvarpinu Karlmennskan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“