

Í erindi sínu segir maðurinn að hann geti ekki fengið fullnægingu nema að ímynda sér eiginkonuna í bólinu með öðrum mönnum.
Eins og gengur og gerist í samböndum upplifðu hjónin erfitt tímabil þar sem þau fóru í sundur um tíma.
„Þetta gerðist stuttu eftir að dóttir okkar fæddist og ég átti í samskiptum við konu á netinu. Þegar eiginkona mín fann myndir sem þessi kona hafði sent mér henti hún mér út og sagðist vilja skilnað. Við vorum í sundur í níu mánuði og á því tímabili upplifði ég þunglyndi og gat ekki hugsað mér að koma nálægt öðrum konum. En að lokum áttuðum við okkur bæði á því að við vildum vera saman.”
Hann segir að þau hjónin hafi síðan þá eignast aðra dóttur og rifjar upp að þegar þau náðu sáttum hafi þau ákveðið að vera 100% hreinskilin við hvort annað.
„Það var þá sem hún sagði mér að hún hefði farið á fjölmörg stefnumót þegar við vorum í sundur og átti meira að segja í fimm mánaða sambandi við ákveðinn mann. Þess utan sagðist hún hafa átt einnar nætur gaman í nokkur skipti.”
Maðurinn viðurkennir að honum hafi brugðið við að heyra þetta, en bætir við að hann hafi spurt hana út í þetta og hún svarað hreinskilnislega, eins og lagt var upp með.
„Hún fór ekki út í nein smáatriði en hugurinn er góður í að sjá hluti fyrir sér. Og vandamálið er að ég næ þessum myndum ekki úr hausnum. Þær koma algjörlega óumbeðnar. Það skrýtna er að mér finnst þær óþægilegar en á sama tíma kveikja þær í mér á einhvern undarlegan hátt. Er nú svo komið að ég get ekki fengið fullnægingu án þess að sjá hana fyrir mér stunda samfarir með öðrum mönnum. Ég elska konuna mína og vil alls ekki segja henni frá þessu. Hvernig kem ég í veg fyrir að það gerist?
Deidre segir að fantasíur eins og þessar séu hreint ekki svo óalgengar. Að upplifa þær og jafnvel finnast þær spennandi gefi alls ekki til kynna einhverja brenglun.
„Mörgum körlum getur fundist kynferðisleg afbrýðisemi vera örvandi. Að reyna að bæla þessar hugsanir niður lætur þær ekki hverfa og gæti jafnvel gert þær sterkari.
Í staðinn þarftu að vinna úr tilfinningum þínum gagnvart sambandinu,“ segir ráðgjafinn og hvetur manninn jafnframt til að vera heiðarlegur við eiginkonu sína. „Þú þarft ekki að segja henni smáatriðin um fantasíurnar, bara að þú sért að glíma við þetta.“