fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Hafþór lýsir erfiðasta atriðinu í Game of Thrones – „Þetta var martröð“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 13:30

Game of Thrones tökurnar tóku sinn toll af Hafþóri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsþáttaröðin um Krúnuleikana, Game of Thrones, gerðu Hafþór Júlíus Björnsson aflraunamann heimsfrægan. Hann er einmitt oft kallaður Fjallið eftir persónunni Gregor Clegane, eða Fjallinu, sem hann lék í þáttunum.

En Game of Thrones tóku sinn toll af Hafþóri eins og hann lýsir í nýlegu viðtali. Þar fer hann yfir eftirminnilegustu og erfiðustu atriðin í þáttunum.

„Sum atriðin í Game of Thrones voru erfiðari en önnur vitaskuld,“ sagði Hafþór í viðtalinu. Nefnir hann sérstaklega lokabardagann við bróður sinn, Sandor Clegane eða Hundinn, leikinn af skoska leikaranum Rory McCann.

„Við börðumst upp og niður stigana og ég var með gríðarlegt magn af farða á mér og í risastórri brynju inni í stúdíóinu. Þeir byggðu risa stiga þar inni og það var heitt. Myndavélar og ljósi beint að þér og þú ert að berjast og klifra stiga…. og það þurfti að taka þetta aftur og aftur og aftur. Fótleggirnar á þér brenna. Þér líður eins og þú sért í sauna-baði, augun á þér eru að svitna út úr hauskúpunni… þetta var martröð.“

Þessar tökur hafi verið mjög lýjandi og þurftu mikinn undirbúning á hverjum einasta degi.

„Þú verður andlega mjög þreyttur þegar þú þarft að vakna klukkan 2:00 á hverri einustu nótt og fara í förðun í marga klukkutíma og svo í tökur allan daginn…. í marga daga. Þetta fokkar þér upp, þú verður virkilega þreyttur,“ sagði Hafþór.

Viðtalið má sjá hér:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi