fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Sindri selur í Skerjafirði – Allt til alls í glæsilegu einbýli á pöllum

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 14:30

Sindri Sindrason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsmaðurinn Sindri Sindrason á Sýn hefur sett einbýlishús sitt við Baugatanga 8 á sölu. 

Húsið er 320,9 fm á 829,0 fm eignarlóð í friðsælum botnlanga í Skerjafirði, þar af er 37,8 fm tvöfaldur bílskúr. Flott aðkoma er að húsinu með upphitaðri hellulögn við bílaplan og inngang inn í húsið.

Húsið sem er á pöllum skiptist í forstofu, hol með marmara á gólfi og stigaþrepum niður í stofu og borðstofu og upp í svefnherbergisálmu. Innangengt er frá holi inn í eldhúsið og inn á gestasalerni.

Eldhús er með sérsmíðuðum innréttingum, eikarinnréttingum sem er svart, sprautulökkuð. Dökkur marmari með leðuráferð frá S. Helgasyni, bæði á borðum og á eyju sem hægt er að sitja við. Vönduð tæki í eldhúsi frá Siemens, innbyggð uppþvottavél og flottur búrskápur í innréttingu. Útgengi út frá eldhúsi út á hellulagða verönd.

Stofa, arinstofa og borðstofa er með marmara á gólfi, alrými með hátt til lofts. Veggur skilur borðstofu af að hluta til. Góð lofthæð og arinn með marmara. Útgengi er út frá stofu út á skjólgóða timburverönd. Gengið er niður stigaþrep niður í sjónvarpsrými, náttúruflísar þar á gólfi. Inn af sjónvarpstofu er aðgengi að herbergi með saunuklefa og sturtuaðstöðu.

Tómstundaherbergið er í spænskum stíl með náttúruflísar á gólfi og er geymsla inn af herberginu.

Svefnherbergisálma er á efsta palli. Hjónasvítan er rúmgóð með sér fataherbergi og sér baðherbergi.

Tvö önnur rúmgóð svefnherbergi eru á hæðinni. Annað herbergið í dag er notað sem skrifstofuherbergi. Annað baðherbergi er á hæðinni og sér þvottahús með flísar á gólfi.

Bílskúrinn er með tvöfalda bílskúrshurð með rafdrifnum hurðaopnara. Innangengt er frá sjónvarpsherbergi inn í bílskúrinn. Inn af bílskúr er svo önnur geymsla.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi